Hundadagar Quotes
Hundadagar
by
Einar Már Guðmundsson138 ratings, 3.29 average rating, 20 reviews
Hundadagar Quotes
Showing 1-9 of 9
“Þannig endaði þessi brú. Brúin í Ross. Á einni hlið hennar er samsafn myndverka. Það komu listrænir fangar og luku verkinu. Þar má þekkja höfund brúarinnar, Daníel Herbert, og konu hans, Sir George Arthur landstjóra, ónefndan frumbyggja, veitingamanninn John Headlam og grimmu hundana hans, og svo eru þarna hjónin Nóra og Jörgen Jörgensen, útskorin einsog kóngur og drottning á spilum. Að sigra heiminn er einsog að spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið (og allt með glöðu geði gjarnan sett að veði) og þótt þú tapir það gerir ekkert til, það var nefnilega vitlaust gefið. Í upphafi skildu menn myndverkin á brúnni sem háð en nú benda íbúar bæjarins stoltir á þau, ekki síst á kónginn og drottninguna sem orðið hafa fulltrúar fanganna, og þá ekki síst kóngurinn sem reis upp á borgarafundi og mælti fyrir munn þessa fólks, þeirra réttlausu, fanganna sem höfðu engu að tapa nema hlekkjunum og áttu skýlausan rétt á að rödd þeirra hljómaði.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Nóra var enginn hálfviti. Hún kom Jörgen oft í opna skjöldu. Hún var einsog óvirkjaður foss og hafði ekki notið neins sem lífið bauð upp á. Ekki nema áfengis og ástaratlota, allt til að gleymskan hríslaðist um líkamann þar til hún fyndi fyrir því sem hún mundi og vildi gleyma. Nei, auðvitað var þetta rétt hjá Nóru. Það hugsaði bara aldrei neinn út í það sem hún sagði, að hún gæti haft rétt fyrir sér. Hún var einsog við hér á Íslandi sem aldrei vorum spurð að neinu og hættum að skilja spurningar og svöruðum bara út í hött og sögðum já og nei, samtímis; og gerum enn.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Guð einn veit, hverju fólki datt í hug að ljúga upp á mig,“ segir Jörgen, alltaf jafn viss í eigin sök og tilbúinn að skilja sjálfan sig. Enginn skildi Jörgen Jörgensen betur en hann sjálfur.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Jörgen var frjáls maður. Hann gat gert það sem honum sýndist en það var það versta sem fyrir hann gat komið. Frelsið sem hann þráði svo heitt var versti óvinur hans. Þegar hann var frjáls gerði hann vitleysurnar.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Meira að segja Geir Vídalín, okkar góði og meinlausi biskup sem hallmælti engum, sagði um „consul Jón Parker“ að þar færi afar „óviðfelldinn og fégjarn“ maður. Þegar Jörgen var farinn sást James Savignac æ oftar í fylgd með Guðrúnu Johnsen og”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Næst þegar þau hjónin sáu konung sinn var hann rúinn öllum völdum en lét Jens fá fiðluna sem sjómaðurinn hafði leikið á, bæði á dansleikjum og þarna í Vatnsmýrinni. Nú átti þessi fiðla sér ansi áhugavert líf fyrir höndum því mörgum árum seinna þegar sonur Jens og Málfríðar sigldi til Ameríku var fiðlan með í farteskinu og varð hún upphaf mikils fiðluleiks í marga ættliði einsog lesa má um í bókum Böðvars Guðmundssonar, Híbýli vindanna og Lífsins tré.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Það er alltaf einhver sem þarf á hjálp að halda. Það er alltaf einhver úti í kuldanum, einhver að leita að hendi í snjónum.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Og ástin blómstrar – eða fölnar. Það er ekkert ljós án skugga, engin hamingja án óhamingju. Ástin kemur alltaf við sögu.”
― Hundadagar
― Hundadagar
“Hann benti líka á hvað það er skrýtið að það þurfi vitnisburð annarra til að staðfesta stærsta atburð eigin lífs, fæðinguna.”
― Hundadagar
― Hundadagar
