Find & Share Quotes with Friends

Ofvitinn Quotes

Rate this book
Clear rating
Ofvitinn Ofvitinn by Þórbergur Þórðarson
190 ratings, 4.21 average rating, 8 reviews
Ofvitinn Quotes Showing 1-9 of 9
“Þar á móti komst sú gamla tilfinning nú aftur upp á yfirborð sálarinnar, að ég ætti ekki heima á þessu plani tilverunnar, að ég hefði villzt hingað, væri hér eins konar boðflenna.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Ástin varð bara væminn aumingjaskapur og hverjum alminlegum manni ósamboðið að hokra að konum.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Ég var alls staðar hálfur. Hvergi heill.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Það eru nú liðin rúm þrjú ár, síðan ég komst á snoðir um, að stefnumót geta aðeins haft einn tilgang. Stefnumót, - það er viðbjóðslegt orð.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Ísland er svínastía sálarlausra prangara.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Öll séní hafa verið utan við sig. Séní eru alltaf niðursokkin í merkilegar hugsanir. En þið hugsið ekki neitt. Þið eruð kannski skjót til svars, en það er bara af því að þið hafið ekkert við að vera inni í ykkur. Heimskingjar eru alltaf fljótir til andsvara. Ég gæti kaffært ykkur öll í kappræðum um spakleg efni, bölvuð hænsin ykkar.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Ég er þeirrar skoðunar að reglulega duglegt blindfyllirí sé hættuminna upp á freistinguna.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“Ég fyrirlít pólitík. Pólitík er atvinnuvegur skíthæla.”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn
“En hvað það er einkennilegt að heyra fótatak stúlku á hljóðu haustkvöldi þegar maður er nýkominn úr sveit! Fótatak er hljómfall sálarinnar. Hvert er hún að fara? Hvers er hún að leita í lífinu? Hefur hún gaman af að horfa á tunglið suður í Beneventum á heiðskírrí vetrarnótt? Les hún kvæði? Þráir hún sannleikann? Þyrstir myrkrið í sál hennar eftir ljósi réttlætisins? Skyldi hún nokkurn tímann hafa gert hitt?”
― Þórbergur Þórðarson, Ofvitinn