Bland-leshringur discussion
This topic is about
Der Hundertjährige, der aus dem Fenster stieg und verschwand
Tilkynningar
>
Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf er bók janúarmánaðar
date
newest »
newest »
Ég fékk hana í jólagjöf og er rétt byrjuð á henni. Les hana á frummálinu, finnst þýðingar svo misgóðar að ég vil helst ekki lesa þær ef ég kemst hjá því :) Vona að ég hafi tími til að klára í tæka tíð. Skemmtilesturinn situr yfirleitt alltaf á hakanum þegar skólinn er kominn á fullt.
Hm hún er reyndar sem kjörbók í skólanum en ég hef bara ekki svo mikinn áhuga á að lesa hana, hugsa að ég verði ekki með í þessum mánuði.
Ætla líka að vera með, spennt að lesa hana :) Veit ekki hvort ég næ á réttum tíma samt, er að bíða eftir Menningarkortinu til að fá bókasafnsskírteini. Held að það sé síðan alveg biðlisti á bókasöfnum :/ Þið sem eruð byrjaðar, finnst ykkur þetta vera svona bók sem maður væri til í að eiga og lesa aftur seinna?
Dís wrote: "Ætla líka að vera með, spennt að lesa hana :) Veit ekki hvort ég næ á réttum tíma samt, er að bíða eftir Menningarkortinu til að fá bókasafnsskírteini. Held að það sé síðan alveg biðlisti á bókasöf..."Ég á hana og ég á líklega ekki eftir að lesa hana aftur. En mér fannst hún samt æðisleg, en svona verk sem ég les bara einu sinni. Svolítið erfitt að setja út á hana án þess að segja frá :).
Kv Dóra




Núna gefum við okkur þrjár vikur til að lesa hana (til 29. janúar)!
Vonandi gengur ykkur vel að finna hana því samkvæmt mínum upplýsingum er hún rosalega vinsæl á öllum bókasöfnum landsins.