Bland-leshringur discussion

17 views
Tilkynningar > Næsta bók: Vatn handa fílum

Comments Showing 1-21 of 21 (21 new)    post a comment »
dateUp arrow    newest »

message 1: by Assa (new)

Assa | 123 comments Mod
Vatn handa fílum (Sara Gruen) fékk flest atkvæði svo hún er næst á dagskrá. Miðað við næsta mánudag, 27.júní, höfum við til 25.júlí til að klára bókina.

Ég byrjaði á henni í morgun og hreinlega gat ekki lagt hana frá mér svo ég kláraði hana áðan.. alveg óvart :)
Hlakka til að ræða hana þegar þið eruð búin með hana, mæli amk með henni.


message 2: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Vá hvað þú ert dugleg! Ég er ekki einu sinni búin með Pí! En það er þó farið að síga á seinni hlutann, ef ég hætti fyrr í tölvunni í kvöld og byrja að lesa þá ætti ég að klára hana á næstu 2 dögum :)


message 3: by Dora (new)

Dora | 14 comments Ég tók hana á bókasafninu og var tvö kvöld með hana :s. Ætlaði aldeilis að hafa tíma fyrir hana ef hún væri eitthvað í líkingu við Pí en úpppssss, hún var bara óvart búin.
Þannig að ég verð bara að rifja hana upp þegar þið farið að ræða hana :).


message 4: by Assa (new)

Assa | 123 comments Mod
Sagan greip mig bara gjörsamlega, það er ekkert allt of oft sem ég get bara ekki lagt bók frá mér en alltaf jafn gaman þegar maður hittir á eina svoleiðis.
Núna er ég að pæla hvað ég eigi að lesa næst þar sem ég er ekki í stuði fyrir þær bækur sem ég er með hjá mér núna ;)


message 5: by Thura (new)

Thura | 66 comments Mod
Wolf wrote: "Vatn handa fílum (Sara Gruen) fékk flest atkvæði svo hún er næst á dagskrá. Miðað við næsta mánudag, 27.júní, höfum við til 25.júlí til að klára bókina.

Ég byrjaði á henni í morgun og hreinlega..."


Ertu ekki að grínast! Hlakka til að byrja þá :)


message 6: by Amethyst (new)

Amethyst | 50 comments Mæ god! Gott að heyra að það séu fleiri en ég að böglast við að ljúka við Pí. Er ekki enn búin með hana. Má maður ekki vera "kleina" og leggja hana aðeins til hliðar til að byrja á Vatn handa fílunum? Hún er greinilega auðlesnari :o)


message 7: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Já ég er að rembast eins og rjúpan við staurinn með Pí, er ekki ennþá búin heldur, á tæpar 150 bls eftir (hélt það væri minna en svo fór ég að telja).

Er einmitt líka að spá í að leggja henni aðeins og byrja á Vatn handa fílum (ég les alltaf fíflum hehe). Fer allavega á bókasafnið á morgun og ætla að ath hvort hún sé til.


message 8: by Assa (new)

Assa | 123 comments Mod
Amethyst og Imma89, á hvaða bls eruð þið í Sagan af Pí? Bara spá hvort þið séuð á svipuðum stað og ég var þegar ég var nánast að gefast upp ;)

Annars er Vatn handa fílum allt öðru vísi og meira grípandi fannst mér. Öfunda ykkur næstum því að eiga eftir að lesa hana ;)


message 9: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Ég er á bls 193 (kafli 65). Það er ekki núna að hún sé erfið eða að ég nái ekki að sjá fyrir mér aðstæður heldur finnst mér hún bara leiðinleg :/ Skemmtilegastur finnst mér þó Richard Parker en hann gerir voða fátt samt. Sá alltaf fyrir mér að þeir yrðu vinir og eitthvað hehe.


message 10: by Assa (new)

Assa | 123 comments Mod
Mæli með að þú svindlir þér áfram á 3.hluta ef þú ert alveg búin að fá nóg. Alltaf hægt að kíkja á hitt eftir á ef þig langar ;) Eða bara henda henni ofan í skúffu og byrja á hinni :D


message 11: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Hehe já kannski maður geri það bara. Ég er komin með Vatn handa fílum í hendurnar og er aðeins byrjuð (ég ætla alltaf að hafa voða kósí og lesa á meðan strákarnir mínir eru í góðum leik - en það er nú bara þannig að eftir tvær línur þá þarf ég að fara að skipta mér að þeim...). Mér líst rosalega vel á hana, konan á bókasafninu sagði einmitt við mig að hún væri rosalega góð.


message 12: by Amethyst (new)

Amethyst | 50 comments Ég er á bls 115! Mér finnst hún ekkert leiðinleg, bara hæglesin eða eitthvað. Bara svona dúllubók.Svo er ég búin að vera lesa spoilerana frá ykkur og finnst það ekkert verra. Hjálpar manni bara ef eitthvað er.
Er viss um að þetta er bók sem maður þarf að lesa aftur, eins og þú segir Wolf og fleiri ; að lesa hana í annað skipti er allt önnur upplifun.


message 13: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Ég hef nefnilega ekki þorað í spoilerana :P Ég held að það sé alveg rétt hjá ykkur að það væri gott að lesa hana aftur einhverntímann.


message 14: by Thura (new)

Thura | 66 comments Mod
Pí er miklu betri þegar maður les hana í annað skipti, þá þarf maður ekkert að hafa áhyggjur af því að maður missi af einhverju mikilvægu, því ég er sammála ykkur, margir kaflarnir eru mjög hæglesnir og spennulitlir.

Ég mæli með að renna bara hratt yfir partana þar sem ykkur leiðist, það er ekkert krítískt að ná öllum pælingunum í þessari bók. Eða skipta yfir í meira spennandi bók bara og lesa Pí t.d. í flugvél þar sem maður er einn að ferðast og ekkert annað að gera :)


message 15: by Amethyst (new)

Amethyst | 50 comments LIKE! Sarah! Ég mun lesa hana aftur....lofa!!


message 16: by Imma89 (new)

Imma89 GoGoYubari | 61 comments Jæja ég er búin með Vatn handa fílum! :) ROSALEGA góð, ég held hún sé bara orðin uppáhalds bókin mín! Svo ótrúlega spennandi og heillandi! Hlakka til að ræða hana!


message 17: by Assa (new)

Assa | 123 comments Mod
Ekki tók það langan tíma ;) Ég er enn ekki búin að finna neina bók sem mig langar að lesa á meðan ég bíð eftir að allir klári Vatn handa fílum. Fannst hún svo góð að það virkar ekki að fara lesa bara hvað sem er núna.. hehe ;)

Er einhver hérna búin að lesa Bókaþjófinn? Var að spá í hvort ég ætti að kíkja í hana kannski.


message 18: by Thura (new)

Thura | 66 comments Mod
Amethyst wrote: "LIKE! Sarah! Ég mun lesa hana aftur....lofa!!"

lol, það er tími og staður fyrir allt Amethyst... eða flest :)

Ég náði í Bókaþjófinn á kindle græjuna mína í síðasta mánuði en er ekki búin að lesa hana. Ég er samt mjög spennt fyrir þessari bók, ég hef lesið nokkrar bækur undanfarið sem gerast í kringum/í WWII og þær hafa verið mjög skemmtilegar.


message 19: by Amethyst (new)

Amethyst | 50 comments Ég gerðist svo bíræfin að leggja Pí aðeins til hliðar og rauk á bókasafnið og náði mér í "Vatn handa fílunum" ( ....og Óreiða á striga...og Bókaþjófinn...þvílíkir doðrantar allar þrjár!)
Verð bara að segja það að þetta er skemmtilegasta bókin hingað til sem við höfum verið að lesa :o)
Er hálfnuð með hana, byrjaði í gær!
Hlakka mikið til að sjá umræður um hana og ræða.


message 20: by Amethyst (new)

Amethyst | 50 comments Já.....gleymdi....vil hvetja allar þær sem eru ekki byrjaðar að lesa hana að gera það endilega og vera með í þessum hring. Mæli með henni!


message 21: by Thura (new)

Thura | 66 comments Mod
Ég er hálfnuð með Vatn handa fílum, og er sammála ykkur stelpur, þetta er skemmtileg bók.
:)


back to top