Þrælskemmtilegt innlegg í Diskheimaseríu Pratchetts. Einkasonur farósins neyðist til að taka við búinu eftir að sá gamli hrekkur upp af. Hann var búinn hefja nám sem leynimorðingi í borginni Ankh-Morpork en þarf nú að snúa heim til að glíma við óviðráðanlega presta, risa-píramídabyggingu, fórn sem neitar að láta drepa sig og úlfalda sem reynist mesti stærðfræðingur Diskheima. Já ekki er öll vitleysan eins.