Okkar hafa borist með skipi erlendis frá sextíu kíló af sólskini. Sagan af Eilífi bónda, syni hans Gesti og fólkinu í Segulfirði. „Og nú stóð hann hér, Eilífur, einn á breiðri snjóblæjunni, sveittur af angist og hugsaði: Þrjú kíló hveiti fyrir þetta? Þrjú kíló hveiti fyrir bú mitt, konu, börn og kú? Þrjú kíló hveiti fyrir allt mitt líf? En þá heyrði hann allt í einu baulað undir fótum sér.“ Frá ritstjóra: Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga framtíð en það er eins og forlögin geti ekki gert upp við sig hver sú framtíð eigi að vera. Á hann að vera eftirlæti kaupmannsins á Fagureyri, þræll á framandi duggu eða niðursetningur hjá kotungum í Segulfirði? Í stöðnuðu samfélagi torfaldar eru ekki fleiri möguleikar – en svo kemur síldin! Öreigar landsins sjá peninga í fyrsta sinn og allt breytir um svip. Sextíu kíló af sólskini fjallar um mikla umbrotatíma í íslenskri sögu; hér segir af því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Norðurlandi og Norðmenn námu landið öðru sinni. Saga sem bæði grætir og gleður. Ritað hefir Hallgrímur Helgason.
Hallgrímur Helgason is an Icelandic author, painter, translator, cartoonist and essayist. He has studied at the School of Visual Arts and Crafts in Reykjavík and the Academy of Fine Arts in Munich.
His most famous works are 101 Reykjavík, which was made into a popular film, and Höfundur Íslands (Iceland's Author), which won the Icelandic Literary Prize in 2001. He was nominated for the prize again in 2005 for the novel Rokland (Stormland), along with the Nordic Council's Literature Prize for 101 Reykjavík and Rokland.