Jump to ratings and reviews
Rate this book

Ormstunga

Rate this book
Séð hef ég heimana þrjá,
satt eðli manna ég man,
gjá mikla snerti og fann,
fornt hljóma, djúpt óma, kall.

Eftir sprenginguna miklu undir Velajaborg er hópurinn sundraður – Ragnar hrapar niður á gríðarmikla glersléttu þar sem ekkert líf þrífst, Sirja rankar við sér á ókunnri strönd og Breki vaknar í forboðnum helli fullum af gulli og gimsteinum. Ekkert þeirra veit hvar vinir þeirra eru niðurkomnir en vonin um að finna þá aftur heldur í þeim lífinu. Á meðan berjast eftirlifendur Vébakka fyrir tilveru sinni, óvitandi um þær fornu ógnir sem aftur eru vaknaðar til lífsins. Svo virðist sem tilraunir Ragnars, Sirju og Breka til að sækja hjálp vitringanna hafi brugðist og að tíminn sé á þrotum. Það er margt, svo margt sem myrkrið veit …

Ormstunga er þriðja bókin í Þriggja heima sögu. Fyrri bækurnar hlutu frábærar viðtökur og fyrir þá fyrstu fengu höfundarnir meðal annars Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana.

583 pages, Paperback

First published April 1, 2015

15 people want to read

About the author

Kjartan Yngvi Björnsson

7 books8 followers

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
9 (30%)
4 stars
10 (33%)
3 stars
9 (30%)
2 stars
2 (6%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 - 4 of 4 reviews
Profile Image for Einar Nielsen.
Author 16 books23 followers
September 2, 2015
Nú er maður búin með þriðju bókina eftir Kjartan og Snæbjörn. Við höldum áfram að fylgjast með öllum söguhetjunum sem nú orðin sundrið í baráttu sinni gegn hinum illu öflum. Með þessu fáum við að kynnast heimi Þirggja heima sögu enn betur og dregur það lesandann enn frekar inn í upplifunina. Þessi heimur virðist vera algerlega útpældur af höfundum og að þeir hafa lagt mikla vinnu við bókina (sem og hinar).

Ég verð að segja að þetta bindi er einstaklega vel skrifað og textinn rann alveg einstaklega ljúflega í gegn. Alltaf gaman þegar maður dettur niður á þannig bækur. Eins og áður sagði þá verða persónurnar dýpri og útpældari og mann fer að gruna hvert ferðalag sumra þeirra mun enda (eða minnsta kosti stefna).

Þó það sé margt gott í bókina þá verð ég að gagnrýna eitt. Hún þjáist eins og margir ævintýrabálkar af því að miðbindin þjáist af því að hetjurnar verða að læra að vera hetjur. Önnur bók sem þjáist af þessu er The Wise Man's Fear eftir Rothfoss sem er annað bindi af The Kingkiller Chronicles. Það leiðir til þess að kaflar fjalla um hvernig hetjan er að læra hæfileika sína og bíður ekki mikið upp á hasar eins og aðrir þræðir. Þrátt fyrir þetta er ánægjulegt að lesa áfram þennan stóra íslenska ævintýrabálk.

Ég vona að allir séu búnir að skoða þessar bækur en ef ekki hvet ég fólk endilega til að kynna sér þessar bækur!
12 reviews2 followers
April 14, 2015
Þriggja heima saga færðist á hærra plan með þesari bók. Málfarið í henni er virkilega gott og hún höfðar bæði til unglinga og eldri lesenda. Með henni finnst mér sagan höfða enn betur til þeirra sem eldri eru en fyrirrennarar hennar. Sagan er spennandi og skemmtileg og með henni eru höfundarnir á góðri leið með að ná í hæla Tolkiens og meira hól getur fantasía varla fengið að mínu mati.

Displaying 1 - 4 of 4 reviews