Bókin fjallar um Þórhall sem er fluttur með fjölskyldunni sinni til Þrándheims í Noregi. Hann þekkir engan í skólanum og gengur undir nafninu Túrhalur Túrdarson. Eins og það sé ekki nógu slæmt þá gnæfir löngu dauður kóngur yfir og allt um kring eins og hann væri enn í fullu fjöri. Af hverju halda allir að það sé eitthvað gaman að búa í útlöndum? Og hvernig í ósköpunum á ellefu ára strákur úr Hlíðunum að lifa þetta af?
Lesin með Grími og Garpi. Krisín er frábær barnabókahöfundur. Hetjur fjalla um 11 ára dreng sem flytur til Norgs með fjölskyldu sinni og á erfitt til að byrja með. Krisín nær að blanda fornsögum Noregs og Íslands inn í söguna og læða þannig inn góðum fróðleik. Okkur fannst bókin skemmtileg.
Kom skemmtilega á óvart. Mér fannst kápan og titillinn frekar fráhrindandi en hef haft gaman að flestum bókum eftir Kristínu. Ég las hana fyrir 9 ára dóttur mína og okkur fannst hún báðum mjög skemmtileg. Hún fær mín bestu meðmæli.