Ung stúlka stríðir við svefnleysi eftir að tvíburasystir hennar lendir í slysi. Hún reynir að dreifa huganum með því að hugsa um allt sem er kringlótt. Skurn er fíngerð ljóðsaga um aðskilnað og áföll, styrk og viðkvæmni, og eftir stendur spurningin hvort hægt sé að skilja sársauka annarra.
Arndís Lóa Magnúsdóttir er skáld og þýðandi úr frönsku. Hún hefur þýtt tvær skáldsögur: Ru eftir Kim Thúy og Samþykki eftir Vanessu Springora ásamt Guðrúnu Vilmundardóttur. Árið 2020 vakti Arndís mikla athygli fyrir ljóðabókina Taugaboð á háspennulínu, sem hlaut Nýræktarstyrk Miðstöð var íslenskra bókmennta og tilnefningu til Maístjörnunnar fyrir ljóðabók ársins.
Mjög góð, ég er engin bókagagnrýnandi og er að reyna að gefa ekki öllu fimm stjörnur en mér finnst þessi samt alveg solid 4,5. Svolítið skemmilegt, ég spurði um bókina á Héraðsbókasafni Rangæinga og þau keyptu hana fyrir mig svo ég gæti leigt hana og lesið ❤️