Björt er ráfari, er í stopulli íhlaupavinnu en aðallega fer hún á milli staða í Reykjavík, fylgist með fólki og skráir hjá sér athuganir sínar. Hún leigir herbergi í hrörlegu húsnæði með öðru fólki á svipuðum stað í tilverunni, og hefur fastmótað form og rútínu á lífi sínu. Allt er í föstum skorðum – þar til hún sér Ólöfu Brá … og fær í kjölfarið bréf frá henni. Við það riðlast tilveran og lífssaga Bjartar brýst fram; vináttan við Veru, eitruð sambönd við Steingrím og Hálfdán – og smám saman flettist ofan af hinni ótrúlegu og dramatísku ævi hennar.
Auður Jónsdóttir was born on March 30, 1973. She is a writer and freelance journalist and has published articles, essays and interviews in various journals and newspapers.
Her first published work of fiction is the short story "Gifting" (Marriage), published in the literary magazine Andblær in 1997. Other short stories have appeared in magazines and collections since then. Auður's first novel, Stjórnlaus lukka (Uncontrollable Luck, 1998), was nominated for the Icelandic Literary Prize in the same year. Since then, she has published other novels as well as books for children and teenagers, among them a book about her grandfather, Halldór Laxness. Her novel Fólkið í kjallaranum (The People in the Basement), received the Icelandic Literature Prize in 2004 and the novel, Tryggðarpantur (Deposit), was nominated to the same award in 2006. Auður's latest novel is Vetrarsól (Winter-Sun) from 2008. She is now working on a play, as she was chosen Reykjavík City Theatre's Playwrite-in-Residence for 2009.
Góð bók og áhrifamikil. Dálítið hæg af stað en svo fannst mér hún fljúga áfram þegar komið var að frásögn aðalpersónunnar Bjartar á hjónabandi sínu og árunum eftir það. Langflestar aðalpersónurnar áttu alveg skelfilega æsku og bíða þess ekki bætur. Kannski dálítið ýkt á köflum en það hristir upp í manni og er af hinu góða. Vanræksla og ill meðferð á börnum, miklar og sterkar tilfinningar, MeToo eru meðal aðalumfjöllunarefna Auðar í þessari bók, hún er með puttann á púlsinum. Aukapersónan Gestur fannst mér æði, hefði verið gaman ef hann hefði komið enn meira við sögu.
Góð bók sem fjallar um Björtu sem fékk litla ást í uppvextinum og þráir ást. Sambönd hennar við annað fólk einkum karlmenn er markað af þessu. Hún lifir 13 ár í ástlausu hjónabandi og eftir það kynnist hún Hálfdáni, en í því sambandi verður hún ástsjúk. Sambandið endist ekki og má segja að bókin sé uppgjör við endalok þess. Sagan snertir virkilega við manni og persónugalleríið er áhugavert og skemmtilegt. Ég mæli með bókinni.
Auður kann svo sannarlega að skrifa og nær alltaf til mín. Þessi fjallar um Björt sem elst upp við erfiðar aðstæður sem fylgja henni í gegnum lífið. Í byrjun fáum við að kynnast einstæðri og einangraðri konu sem leigir herbergi í húsi og notast við sameiginlegt eldhús og baðhergi með öðrum leigendum hússins. Hún forðast öll samskipti og eyðir dögunum í að ráfa um og fylgjast með fólki á milli þess sem hún sinnir fjarsölu á Herbalife til að eiga ís og á. Smám saman fáum við svo allskonar hliðarsögur sem skýra það hvernig fyrir henni er komið. Ég fann til með Björt og fannst perónusköpunin frábær. Eina sem pirraði mig var sífellt ríðingartal sem mér fannst ónauðsynlegt. Björt er að steikja sníprautt kjöt sem er samt dekkra en hennar snípur.. af hverju þarf að lýsa kjöti svona? Kannski vill höfundur með þessu tali sína hvað Björt bar litla virðingu fyrir sjálfri sér en þetta gekk of langt fyrir mig og mér fannst Auður vera að ögra lesendum að óþarfa.
Átakanleg lýsing á hvernig vanræksla og ofbeldi í æsku mótar sjálfsmynd Bjartar/Þeys - sem veldur sjálfsskaðandi hegðun á fullorðinsárum. Við fáum að kynnast brotinni manneskju sem orkar ekki að takast á við tilfinningar sínar og er því aðeins áhorfandi að lífi annarra. Sagan endar á að segja frá hvernig hlýja og umhyggja fólks í kringum hana nær að brjóta þann tilfinningamúr sem hún hefur byggt í kringum sig. Frekar erfið aflestrar. Þungt efni. Fantagóður ritstíll.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Er aðdáandi Auðar. Þessi ber merki höfundarins: hlý traust amma, rugl á foreldrum, flókið samband við æskuvinkonu enn flóknara við karlmenn.
Margt fallegt í henni sem snertir viðkvæmni mína og enn meira sem veldur óhug. Sérstaklega kynlífssenurnar sem voru flestar óþægilegar og lausar við nautn.
Fannst endirinn ruglingsleg.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Framvinda bókarinnar var ekki að virka. Þessi undirliggjandi drami aðalpersónunnar hefði mátt koma fram fyrr til að geta sett söguna í betra samhengi. Nokkuð langdregin og mikið um endurtekningar.