Ef litlu jól er réttnefni, hversu lítil eru þau þá í raun og veru? Hvers vegna eiga hrútar svona erfitt með að festa ráð sitt? Hvernig sigrar maður nágranna í jólaskreytingum? Má maður ekki gleðja ellihruman afa á jólum með gjöf sem er kannski ekki mjög kristileg? Hefur Andrés ekkert annað fram að færa en að vera utan gátta? Hvernig stendur á því að Adam Freyr og Mjallhvít Ósk eignuðust sjö dvergvaxna syni?
Öllum þessum knýjandi spurningum – og mörgum fleiri – svarar Bjarni Hafþór Helgason í sínu fyrsta smásagnasafni, Tími til að tengja. Bráðfyndnar sögur þar sem leiftrandi húmor Bjarna Hafþórs fær að njóta sín og kunnuglegir hlutir eru sýndir í nýju og óvenjulegu ljósi. Hér geta margir á sig brosum bætt!
Áhugaverð og metnaðarfull hugmynd að gefa út smásagnasafn með jólasögum sem flestar slá á létta strengi og sumar ansi farsakenndar. Gæðin eru þó æði misjöfn og bókin hefði líklega orðið betri ef höfundur hefði sleppt 3-4 sögum. 2,5 stjönur.