Reykjavík haustið 1918; spánska veikin breiðist hratt út í skugga Kötlugoss og annarra hörmunga og landlæknir sætir ákafri gagnrýni fyrir að verjast ekki vágestinum af nægilegri hörku. Hann vakir þó og vinnur daga og nætur, fullur sjálfstrausts og sannfærður um að hann sé að gera rétt. En þegar til hans leitar ung konar sem vill fá leyfi til ljósmóðurstarfa kemur brestur í brynju hans. Aðstæður þeirra, skoðanir og kjör eru gjörólík en samt dragast þau hvort að öðrum - og eiga þó enga samleið. Allt í kring herjar drepsóttin og fellir fólk á besta aldri; vini og ástvini. Urðarmáni er grípandi og áhrifamikil söguleg skáldsaga um líf, dauða og lærdóma fortíðar. Hvað myndi gerast ef viðlíka farsótt skylli á í nútímanum? Ari Jóhannesson læknir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007 fyrir ljóðabókina Öskudaga og árið 2014 sendi hann frá sér skáldsöguna Lífsmörk sem fékk stórgóðar viðtökur.
Þetta er náttúrulega skáldsagan sem allir, og þá meina ég allir, ættu að lesa núna og tala um meðan beðið er eftir því hvernig mál þróast með Kórónaveiruna - Corvid 19. Að ekki sé talað um ef allt færi nú á versta veg. Höfundur, sem nota bene er læknir, dregur upp góða mynd af aðstæðum fólks hér á landi og þá helst í Reykjavík í spánskuveiki faraldrinum 1918 og lýsir því hvernig svona pest hefur áhrif á líf fólks. Síðan dregur hann þræði inn í nútímann með þeim hætti að hárin rísa á höfði manns. Svipuð pest og spánska veikin kemur nefnilega til landsins frá Kína í febrúar og mars 2020, segir í þessari bók sem kom út haustið 2019 að ég held - og hér sitjum við nú akkúrat um þá daga og lesum í fréttum um það hvernig hún nálgast. Maður saknar þess helst í þessarri fínu og læsilegu bók að ekki skuli skrifað meir um það hvað geti verið í vændum í nútímanum, og þá á næstu vikum og mánuðum. Ef það verður bara brot af hryllingnum 1918 þá er ekki von á góðu.
Vel skrifuð bók, áhugaverður stíll, og skemmtilegir orðaleikir og fléttur, hló oft upphátt þrátt fyrir háalvarlegt viðfangsefnið. Bókin kom út árið 2019 en sagan sjálf hefst í febrúar 2020 þegar til Íslands berst fuglaflensa með kínverskum ferðamönnum. Atburðarásin er ótrúlega lík því sem við svo upplifðum í raun á upphafsdögum c19 faraldursins - í febrúar 2020! Í tímaflakki er horfið öld aftur og fylgst með skelfilegri baráttu Reykvíkinga við spænsku veikina sem kostaði fjöldamörg mannslíf haustið 1918 í skugga Kötlugoss. Svolítið magnað að lesa þessa bók milli þess að hlusta á upplýsingafundi þríeykisins, fylgjast með nýjustu smittölunum, dánarfregnunum, minnisblöðum landlæknis og síðast en ekki síst stanslausum jarðskjálftum og vangaveltum um hvort gjósa muni aftur í Fagradalsfjalli meðan á þessari heimsfarsótt stendur. Algjörlega hægt að mæla með þessum lestri!
Sagan hefst í febrúar 2020 (kom út árið 2019) sem veldur áhugaverðum samhljómi við Covid-19. Farið er til Reykjavíkur fortíðarog fylgst með því hvernig tekist var við faraldur á þeim tíma. Hún byrjaði mjög soennandi en dalaði dálítið út. Hefði viljað heyra meira af Kötlu og hennar upplifun, lyfta henni upp og leyfa henni að taka meira pláss í sögunni.
Sagan heillaði mig ekki. Óljós skipti milli sögupersóna og söguþráða. Líkingarmál er notað í of miklu mæli og samtölin þurr. Þokkaleg lesning en mun ekki mæla með.
This entire review has been hidden because of spoilers.