Arngrímur Vídalín er hér með sterka innkomu sem skáldsagnahöfundur. Honum tekst að búa til mjög sannfærandi sögusvið og teiknar upp horfin tíma sem verður ljóslifandi á blaðsíðunum. Þegar maður skrifar sögur sem dansa á mörkum þess dulræna er oft betra að segja minna en meira, og leyfa lesendum að fylla í eyðurnar. En þetta er vandrataður stígur og stundum fannst mér ég þurfa að vita aðeins meira. Margar persónur eru kynntar til sögunnar og ég hefði viljað vita meira um flestar þeirra en höfundur lætur uppi. Stundum kvarta ég yfir því að bækur séu of langar, en þessi hefði alveg mátt vera lengri. Ég veit að Arngrímur er ekki þurrausinn þegar kemur að þessu sagnaheimi, og bíð spenntur eftir næstu bók.
Mjög sannfærandi og óvenjuleg skáldsaga og hressileg frumraun. Hefði að ósekju mátt vera lengri, þráðurinn er á köflum aðeins gloppóttur, en góð bók engu að síður.