Ásta Bjarnadóttir fór alla tíð sínar eigin leiðir. Hún var níunda í röð fimmtán systkina, fædd á Húsavík 1922. Átján ára gömul eignaðist hún barn sem hún fól foreldrum sínum en flutti sjálf til Bandaríkjanna. Þar átti hún í sambandi við 30 árum eldri ofursta sem hún hafði kynnst í „ástandinu“ í Reykjavík. Seinna giftist hún íslenskum manni og eignaðist með honum fjórar dætur en varð ung ekkja og gekk brösuglega að takast á við afleiðingar þess og ábyrgðina á ungum börnum. Hér leyfir Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og dóttir Ástu, minningunum að streyma fram í leit að skilningi á mömmu sinni; kryfur ástæður þess að svo glæsileg og hæfileikarík manneskja glímdi alla tíð við vanmetakennd og höfnunartilfinningu. Hvers vegna kom hún sér iðulega upp á kant við þá sem þótti vænt um hana? Og hvað leiddi til þess að litríka, erfiða og heillandi mamma hennar boðaði með fáheyrðum hætti dauðann á sinn fund? Sæunn Kjartansdóttir er sjálfstætt starfandi sálgreinir með langa reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna, þar sem foreldrum ungra barna er veitt aðstoð við að mynda örugg tengsl við börn sín og þeir styrktir í foreldrahlutverkinu á viðkvæmustu mótunarárum barnanna.
Bókin er skemmtileg til að byrja mig og í þó nokkurn tíma eftir það. Líf mömmunnar er áhugavert og viðburðamikið. Málið er bara það að hún fellur í algenga gryfju ævisaga að eiga ekki endilega við hinn almenna lesanda, heldur virðist á köflum skrifuð helst fyrir vini og vandamenn umrædds aðila. Of mikið af smáatriðum, of djúpt rýnt í suma lífsvirðburði og atriði.
Sæunn fôr mjög vel með þetta. Mjög áhugavert að sjá hvering og gott getur verið að blanda sálgreiningu og mannlega lífinu. Því við erum öll mannverur með litróf lífsins, allir hafa eitthvað og sama hve mikla reynslu eða kunnáttu þú hefur á einhverju sviði, þá getur það allt farið lönd og leið þegar maður sjálfur er í auga stormsins. Mjög góð bók sem margir geta samsamað sig að einhverju leiti.
Ég heillaðist strax af litríkum karakter mömmunnar og hispursleysi. Hún hefur greinilega verið karakter sem lét óskrifaðar reglur samfélagsins ekki stýra því hvernig hún lifði sínu lífi og þeim ákvörðunum sem hún tók. Því miður vantaði töluvert upp á að sögumaður næði að glæða söguna því lífi sem lífshlaup mömmunnar kallaði á. Þurrprumpulegur lestur á köflum og fáar sjarmerandi persónulýsingar.
Bjóst ekki við miklu en bókin reyndist síðan hin ágætasta afþreying. Gaman að fá innsýn inn í líf svo sérstakrar konu og hvernig æskan hefur að öllum líkindum mótað hana.
Fín bók og áhugaverð saga en frásögnin var aðeins of óreiðukennd fyrir minn smekk. Stundum var farið of mikið í smáatriði og annars staðar vantaði aðeins upp á.
Áhugavert uppgjör Sæunnar við erfiða barnæsku. Mamma Sæunnar var alkólisti sem missir mann sinn alltof snemma. Fjögur börn þeirra upplifa í kjölfarið algjört umkomuleysi.
Ótrúleg saga um óstýrláta mömmu. Hún var svo sannarlega óstýrlàt og erfið á köflum. Sæunn skrifar söguna á mjög fallegan màta og gerir öll þessi erfiðu verkefni sem þær systur/brôðir takast á við, svo ljóslifandi fyrir augum mínum. Hló oft upphátt en fékk líka illt í hjartað yfir öðrum atburðum.