Jump to ratings and reviews
Rate this book

Claessen - saga fjármálamanns

Rate this book
Eggert Claessen (1877–1950) var einhver mesti áhrifamaður á Íslandi á fyrri hluta síðustu aldar. Hann var náinn samstarfsmaður og ráðgjafi frænda síns Hannesar Hafstein og mágs síns Jóns Þorlákssonar, viðskiptafélagi Thors Jensen og Sturlubræðra, og lögfræðingur Einars Benediktssonar. Hann var einn helsti frumkvöðull Eimskipafélagsins, tók þátt í hinu sögufræga Milljónarfélagi og var lykilmaður í fossafélaginu Titan. Þá var hann bankastjóri Íslandsbanka eldri í tæpan áratug. Sem framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins var hann andlit atvinnurekenda um árabil. Eggert var mikils metinn af samverkamönnum fyrir greind og dugnað en andstæðingar hans sáu hann sem „fjandmann fólksins“ og „höfuðpaur auðvaldsins“. Sagan sem sögð er í þessari bók byggist á umfangsmikilli rannsókn áður óþekktra frumheimilda um störf hans og litríka ævi þar sem skiptast á skin og skúrir, gleði og harmar, hamingja og mótlæti. Öllum steinum í sögu Eggerts er velt við og margt nýtt og óvænt leitt í ljós um hann og samtíð hans. Guðmundur Magnússon sagnfræðingur er höfundur verksins.

468 pages, Kindle Edition

Published October 26, 2017

1 person is currently reading
4 people want to read

About the author

Guðmundur Magnússon

14 books1 follower
Guðmundur is an Icelandic historian and journalist. He is currently the editor of the news website, eyjan.is.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
1 (16%)
4 stars
4 (66%)
3 stars
0 (0%)
2 stars
1 (16%)
1 star
0 (0%)
Displaying 1 of 1 review
Profile Image for Oddur Þórðarson.
4 reviews3 followers
May 4, 2020
Skemmtileg lesning. Ævisaga langalangafa. Mikið safn alls kyns bréfa, mynda, blaðaúrklippa o.fl. lá óhreyft í áratugi á Reynisstað í Skerjafirði, glæsihýsinu sem afi reisti sér og fjölskyldu sinni (afkomendur Eggerts búa þar enn).
Vel hefur tekist að velja úr öllum aragrúanum af heimildum og atburðum í lífi afa gerð góð skil í skemmtilegum texta. Líkt og Guðmundur Magnússon rekur í bókinni var langalangafi umdeildur kaupsýslumaður og án efa hefði okkur ekki samið í pólitík. Ég hlakka til að ræða bókina við langömmu, dóttur Eggerts, og hlakka til að lesa meira eftir Guðmund Magnússon.
Displaying 1 of 1 review

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.