Í fjarlægu landi stendur gömul borg þar sem lystigarðar umkringja háar hallir og seglskip fylla höfnina … en hallirnar eru mannlausar og seglskipin tóm.
Við eitt af breiðstrætum borgarinnar stendur Víxlarahúsið þar sem einungis börn hafa búið síðustu þrjár aldir. Þangað leitar Pietro eftir að hafa misst fjölskyldu sína í plágunni. Við sextán ára aldur þurfa börnin að yfirgefa húsið en þangað til standa þau saman og tekst einhvern veginn að þrauka, sama hversu hart er í ári.
Þegar friðhelgi hússins er rofin heldur Pietro ásamt fleiri börnum inn í leyndardóma háborgarinnar, inn fyrir veggi furstahallarinnar, þangað sem enginn borgarbúi hefur stigið fæti öldum saman.
Mjög skemmtileg og spennandi barna- og unglingabók, áhugaverð veröld og persónur og atburðarás. Kannski í grimmara lagi fyrir sum en hvað veit ég um það? Hlakka til að lesa meira.
Koparborgin er skemmtileg unglingabók sem er fyrir alla sem elska góðar ævintýrasögur. Íslensk saga sem gerist í ævintýralandi sem ekki er til og það gengur upp. Ég vona að Ragnhildur haldi áfram að skrifa því ég get alveg hugsað mér að lesa meira eftir hana.
Spennandi ævintýrasaga. Fannst hún ekkert endilega vera unglingasaga þótt hún sé markaðsett sem slík. Er í dimmari kantinum fyrir unga lesendur en ég hafði gaman af. Hlakka til að lesa næstu bók Ragnhildar.
Elskaði þessa bók. Hún var mun dekkri og þyngri en ég bjóst við og ég fílaði það í botn. Ég mæli með þessari bók fyrir ungmenni og fullorðna sem fíla ævintýralegar fantasíur eins og Neverwhere og Söguna endalausu.
Mér fannst eins ég hefði verið að búast við meiri fantasíu frá þessari bók. Og að hún yrði dimmri. En þó svo að bókin hafi alla þessa eiginleika og þetta var allt vel uppbyggt og vel skrifað. En einhverja hluta vegna varð ég aldrei of heilluð af sögunni.
Gríðarlega góð bók í alla staði. Heimurinn sem hún er sett upp í auðvelt að sjá fyrir sér þar sem honum er vel líst. Heldur skuggalegri en ég hélt í byrjun en var svo sannarlega ein af þeim bókum sem stóðu helst uppúr hjá mér 2022. Get mælt eindregið með henni og hlakka til að lesa næstu.