Hér kynnast lesendur stórmerkilegri fjölskyldu í Firðinum en þó mest hinni alvörugefnu Heiðu. Úti í heimi geisar stríð, amerískir hermenn þramma um bæinn og mannlífið tekur örum breytingum. Í heimi barnanna eiga sér líka stað miklar sviptingar, gáskafull gleðin ræður ríkjum en sorgin nær að varpa skugga sínum á leik þeirra. Bókin er í senn bráðfyndin, spennandi og þroskandi. Undir glaðværu yfirborði sögunnar er veruleiki stríðsáranna sem börnin skynja á allt annan hátt en fullorðnir. Bókin er skreytt fallegum myndum eftir Sigrúnu Eldjárn. Sitji guðs englar er fyrsta bókin í vinsælum bókaflokki eftir Guðrúnu Helgadóttur en í kjölfar hennar komu Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikgerð eftir bókunum var sýnd í Þjóðleikhúsinu og leikin í útvarpi.
Guðrún first worked as a secretary at a school in Reykjavík, and then as department manager at the National Health and Insurance Office. She was a city councillor for the People's Alliance from 1978 to 1982, and a member of the Icelandic legislative assembly from 1979 until 1995. In 1988 she became Speaker of the Alþing, the first woman to hold the position. She is one of the best known children's authors in Iceland, and in 1992 received the Nordic Children's Book Prize for Undan illgresinu (From Beneath the Weeds).
svo góð bók að lesa aftur fullorðin? „milljónir manna eru dánir í þessu stríði páll minn, sagði mamma. og það fólk átti bara eitt líf. það er búið að leggja i rúst heilu borgirnar sem mannkynið hefur byggt af hugviti og þekkingu. milljónir dagsverka hafa verið lögð í rúst. heldurðu að það sem þau gerðu hafi unnið einhvern sigur? haldiði að þeir séu einhverjar hetjur? sagði mamma” pop off
Var hálfpartin með kökk í hálsinum allan tíman! Las hana svo svo oft sem barn, þetta voru uppáhalds bækurnar mínar - og eru eiginlega enn!! Börn eiga skilið svona bækur! ELSKA❤️
þessi bók ( og allar þrjár bækurnar ) eru ansi skemmtileg lýsing á hvernig var að alast upp í litlu sjávarþorpi a stríðsárunum. fátækt, drykkja og strit en alltaf stutt í húmorinn.
sögusviðið er jófríðarstaðarvegur í Hafnarfirðinum. Einkar vel skrifuð saga