Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.
Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.
Nína Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík en búsett á Akureyri ásamt eiginmanni og syni. Hún er menntuð í líffræði og hefur stundað rannsóknir á sviði sjávarvistfræði, m.a. á Svalbarða. Hún hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar Íslenskra bókmennta árið 2022 fyrir handritið að Þú sem ert á jörðu sem er hennar fyrstu bók.
Þessi á allt hrós skilið og meira til! Hrífandi aðalpersónur og ég fékk stöðugt hland fyrir hjartað þegar þau félagar lentu í háska — þótti orðið svo vænt um þau.
Svo innsiglar hún tvær skoðanir sem ég hef í tengslum við skrif bókmennta. Í fyrsta lagi finnst mér hressandi að lesa skáldskap frá sérmenntuðu fólki. Í þessu tilfelli blæs það svo miklu lífi í frásögnina, enda höfundur menntaður líffræðingur.
Í öðru lagi (og eiginlega mikilvægast) þá þykir mér Nánast Nauðsyn að handrit séu skrifuð yfir nokkur ár. Og ég skil vel að það sé erfitt fyrir höfunda í dag! Við höfum komið okkur upp kerfi þar sem klára þarf bækur á einu ári og gefa þær svo út, bara rumpa þessu af og borga svo reikningana og byrja á næstu. Ég hef lesið alltof margar íslenskar bækur sem voru gefnar út sem frábært annað draft — en miðlungsgóðar bækur, skiljiði mig. En maður fær ekki gullmola eins og þessa bók nema með því að leyfa þeim að malla á lágum hita. Lengi! Veit svo sem ekkert hvenær skrif hófust en handritið að Þú sem ert á jörðu hlaut Nýræktarstyrk árið 2022 og kemur svo út núna, þremur árum síðar. Og þessi langi skriftími skilaði sér í mjög þéttri, vandaðri sögu sem hreif mann með sér í ferðalag um heim sem er jafnt kunnuglegur og framandi og málar upp áþreifanlega mynd af framtíðinni.
þessi er, eins og öll segja, virkilega vel skrifuð. hún snertir á mannlegar taugar innst inn í okkur og tekur manninn úr miðju hugmyndarinnar um svokallaðan heimsendi. mæli eindregið með og held að bókum af þessu tagi eigi eftir að halda áfram að fjölga. spennandi undirgrein speculative fiction sem einblínir á loftslagsbreytingar.
Ég var hugfangin og mjög áhyggjufull frá fyrstu opnu!! Það var erfitt að lesa á köflum vegna kvíðans sem ég upplifði fyrir hönd aðalpersónanna og svo grét ég tvisvar, þannig þetta var vægast sagt átakanlegt. En líka svo fallegt og alveg kyngimagnað ferðalag!!
Hér er á ferðinni snilldarlega vel skrifuð dystópía. Fyrsta verk höfundar en á því er enginn byrjendabragur. Þessi saga sat djúpt í mér eftir að ég las hana. Hún er svo fallega skrifuð, stíllinn látlaus, ritaður á glæsilegri íslensku. Söguþráðurinn er harmþrunginn en um leið fallegur, fjallar um nístandi einsemd, en líka fallegt samband manneskju og dýrs. Um samband mannkyns og náttúrunnar. Þetta er stórkostleg bók sem ég mæli heilshugar með.
Ég var hrifinn en ekki alveg jafn bergnuminn og margir. Sagan sjálf er góð en ég hreifst eiginlega ekki almennilega með fyrr en í seinni hluta bókarinnar.
Ég tengdi frekar lítið við Inuk-hluta sögunnar og það er eitthvað í ritstílnum sem truflaði mig. Ég þoli t.d. ekki orðið manneskja - og alls ekki þegar það er notað á þennan hátt.
Annars góðar pælingar, eiginlega ótrúlegt að þetta sé fyrsta bók og myndi alveg mæla með þessari dystópíu. Líka gaman að lesa skáldsögu eftir fellow líffræðing.
Fyrsta bók ársins! Rosalega vel skrifuð, fallegt málfar og raunveruleg saga. Mér var kalt, ég var þyrst og svöng, og var um borð í kajaknum með henni. Fór að gráta. Vonandi setur þessi bók tóninn fyrir restina af árinu 👌🏻 Tengdamamma mældi með
Mér líður eins og ég sé nýkomin úr dystópísku ferðalagi, og sakna strax manneskjunnar og hundsins, sem leiddu mig um þennan nýja heim.
Að sjá hvernig lífið væri ef við mannfólk værum hluti af náttúrunni, en ekki eins og staðan er, náttúruna beisluð í okkar þjónustu, var kröftug áminning um hversu miklu við höfum breytt. Bókin gefur vissa vísbendingu um hvert allt virðist stefna og hvernig við komum fram við heimili okkar hér á jörð oftar en ekki sem sjálfsögðum hlut.
ótrúleg! ótrúlega sár en ótrúlega falleg hugleiðing um samband okkar við náttúruna í kringum okkur, mannlegt eðli og af hverju við höldum áfram að lifa. mér finnst eins og allar lýsingar sem ég gæti skrifað á henni muni láta hana hljóma minna spennandi en hún er, því hún er mjög spennandi og ég hef eiginlega ekki hætt að hugsa um hana síðan ég tók hana upp. hlakka til að ræða við aðra vini sem hafa líka lesið!
Þessa las ég hægt og rólega, enda ekki hægt að gleypa hana í sig á einu kvöldi. Áhrifamikil frásögn og svo ótrúlega fallegur hrynjandi og orðaforði. Algjör konfektmoli sem fær lesanda til að hugsa.
Afar vel skrifuð bók, heimsmyndin í sögunni er óhugnanleg en sagan samt falleg. Sögusviðið er ef til vill dystópískt en líklega er sagan sem er sögð og atburðirnir sem hún lýsir eitthvað sem mun raungerast í náinni framtíð. Mæli mikið með nema fyrir þá sem skilja ekki hvernig loftslagsbreytingar virka
Alveg svakalega vel skrifuð og falleg bók. Sagan segir frá Arnaq og hundinum hennar og ferðalagi þeirra í gegnum mismunandi vistkerfi. Hún lifir í heimi sem hefur tekið grimmt við afleiðingum loftslagsbreytinga; þar eru jöklarnir að bráðna og veðrið hefur breyst svo mikið að hún þekkir það varla lengur. Sagan er mjög gott dæmi um hvernig loftslagsskáldskapur getur fangað bæði raunveruleg áhrif og tilfinningalegan þunga loftslagsvandans.
Yndisleg, ljóðræn og ljúfsár lesning um ferðalag og samband konu og hunds, brotthvarf tegunda og samband okkar við náttúruna. Ég tengdist aðalpersónunni og sögu hennar svo sterkum böndum og gladdist og grét með henni. Þetta er svo svo mögnuð og næm speglun á sögu dýrategundarinnar sem er maðurinn og þetta er ein af örfáum bókum sem ég veit að ég mun lesa aftur og aftur. Skyldulesning. Eftir lesturinn er í mér djúp sorg en jafnframt kyrrð og einlægt þakklæti fyrir lífið og alla sem ég elska. Fáar bækur hafa hreyft jafnmikið við mér.
Vá... ég er bara frekar orðlaus. Þessi bók er ekkert minna en meistaraverk. Ég trúi ekki öðru en að þessi bók muni lifa og lifa og fara á lestrarlista í skólum. Yndisleg upplifun og ég mæli innilega með henni fyrir alla!
Fallega skrifuð skáldsaga sem hafði svoleiðis áhrif á mig. Maður er í öruggum höndum allan tímann enda er höfundurinn menntaður líffræðingur. Virkilega grípandi saga um ferðalag félaganna Arnaq og hvutta ❤️
Þessi bók hitti mig beint í hjartastað. Svo falleg en dapurleg um leið. Heillandi að lesa um baráttu manneskjunar við að lifa af í breyttum heimi, og samband manns og hunds. Þetta er bók sem ég ætla að eiga áfram og lesa aftur síðar.
Frumleg og fallega skrifuð saga sem vekur mann til umhugsunar um manninn, lífríkið og framtíð okkar allra á þessari jörðu. Það er margt á seyði í samtímanum sem gerir þessa sögu svo mikilvæga akkúrat núna. Ég á sannarlega eftir að lesa þessa bók aftur því mig grunar að hún dýpki með hverjum lestri.
Þetta er ein besta skáldsaga sem ég hef lesið lengi, og mun án efa skera sig úr í jólabókaflóðinu hér á Íslandi. Þetta er skáldsaga um samtímann og framtíðina--hún varpar ljósi á brothætt samband mannsins við náttúruna og þann djúpa skaða sem við höfum valdið henni.
Sagan fylgir konu og hundi hennar, sem reka um hafið á ísjaka og berast á endanum á ýmsa staði. Mann grunar að ferðalag þeirra hefjist einhvers staðar við Grænland og endi í Skandinavíu. Náttúran sjálf og landslagið hafa að miklu leiti staðið óræðar hörmungar af sér, en þéttbýlisstaðirnir sem þau koma til eru yfirgefnir, á kafi eða á annan hátt mótaðir af hækkandi sjávarborði. Skáldsagan dregur þannig upp áhrifaríka sýn á heim sem hefur tekið stakkaskiptum eftir ónefndar hamfarir (sem eru þó líklega af völdum hamfarahlýnunar og annarra þátta af mannavöldum), þótt tímasetningin sé aldrei tiltekin.
Þú sem ert á jörðu er afburðavel skrifuð— svo vel úthugsað og vandlega samið verk að erfitt er að finna orð til að lýsa því. Framúrskarandi skáldsaga. Fimm stjörnur.
---
This is one of the finest novels I have read in a long time, and it will undoubtedly stand out amid the Yuletide book flood in Iceland. It is a novel both of our present and of our future, tracing humanity’s fraught relationship with nature and the profound damage we have inflicted upon it.
The narrative follows a woman and her dog, who find themselves adrift on an iceberg, travelling by sea and eventually arriving at various locations. The impression is that their journey begins somewhere near Greenland and concludes in Scandinavia. While the natural landscape is not itself ruined, the urban spaces they encounter are abandoned, submerged, or otherwise reshaped by rising sea levels. The novel thus offers a striking vision of a world irrevocably altered by some unnamed calamity, even though its precise moment in time remains unstated.
It is written with exceptional skill—so meticulously crafted and thoughtfully composed that it is difficult to do it justice in words. An outstanding novel. Five stars. I was genuinely overwhelmed by it.
Fyrir einhverjum árum síðan las ég Veginn eftir Cormac McCarthy. Hún kom upp í hugann við þennan lestur, því sögurnar hafa viss sameiginleg einkenni. Vegurinn er um karl á ferð með ungan son sinn í gegnum eftirheimsenda landslag. Þú sem ert á jörðu er um konu á ferð með hundinn sinn í gegnum eftirheimsenda landslag. Í báðum bókum eru nær eingöngu tvær persónur. Þrátt fyrir viss líkindi þá líkaði mér Þú sem ert á himnum mun betur. Hún snerti virkilega við mér.
Hvað gerðist, hvernig heimurinn endar, stærsti hluti mannkyns deyr og mikið af dýrunum líka, er í sjálfu sér ekki alveg skýrt út, en það er sagt nægilega mikið til að sagan virkar sannfærandi. Maður getur vel séð loftlagsbreytingarnar í þessu þó það sé ekki hamrað á þeim. Það verður samt ekki aðalatriðið. Sagan snýst að miklu leyti um sambandið við hundinn og minningar um hvað hafði verið. Það er alveg yndislega bæn hundaeigenda undir lok bókarinnar.
Eina sem ég rak augun í var að eftir að hafa verið í kringum hunda í fjörtíu og eitthvað ár, þá hef ég ekki enn rekist á þann hund sem ælir og reynir ekki að borða það strax aftur. Ég er ekki að segja að það geti ekki gerst, en ég hef bara ekki rekist á það sjálfur. Þetta er auðvitað svo smátt smáatriði að það skiptir ekki neinu máli. Það eina sem ég er að segja að sagan er svo vel gerð að það eru bara svona smá atriðið sem stoppaði mig í augnablik.
Þetta er flott frumraun. Sagan er virkilega vel upp byggð, sterk og heldur út frá upphafi til enda. Endirinn er sterkur og í góðu samræmi við það sem áður var komið, ólíkt því sem mér fannst gerast í Veginum eftir McCarthy. Það er líka það að sagan hélt mér alveg frá upphafi til enda þrátt fyrir að vera bara um tvær persónur að takast á við náttúruna og nýjan heim. Nú bíð ég bara eftir hvað höfundur tekur sér næst fyrir hendur. Mig langar að lesa þá bók.
Ótrúlega fallega skrifuð. Minnti mig mikið á The Wall eftir Marlen Haushofer sem ég var líka mjög hrifin af. Báðar fjalla um konu sem er stödd í heimi þar sem enginn annar virðist vera eftir, og hún þarf að reyna að lifa af með dýrunum sínum í gegnum allskonar hremmingar. Þessi er hins vegar aðeins jákvæðari, þrátt fyrir að mannkyninu hafi greinilega tekist að nánast útrýma sér þá fann ég samt fyrir mikilli bjartsýni og ást á því sem manneskjur geta gert til að bæta þennan heim.
Þetta er auðveldlega ein af mínum uppáhalds íslensku bókum sem ég hef lesið lengi.
Mjög áhugaverð og vel skrifuð bók um konu, Arnaq, sem reynir að lifa af með hundinn sinn á heimskautasvæði eftir hamfarir, greinilega af völdum hækkaðs hitastigs. Ísinn bráðnar, hún fer víða um margvíslega vistkerfi og alls staðar er auðn og ekkert fólk. Smám saman segir hún í endurliti frá því hvernig ríkustu mennirnir ætluðu að flytja á aðrar plánetur eða byggja hjúp yfir eyðimörk til að lifa af en hún veit ekki hvað gerðist. Trúverðug lýsing.
Ein af bestu bókunum sem ég hef lesið! Og fyrsta bók höfundar að auki. Ég á varla orð. Einstaklega vel skrifuð og heillandi allt frá fyrstu síðu. Á kannski ekki heima í fantasíunum þar sem þetta gæti orðið raunveruleikinn eftir nokkra áratugi.
Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur: Afskaplega falleg bók, dapurleg og skelfileg en þó svo æðrulaus, óljós og óræð en um leið svo skýr. Mjög fljótlesin en jafnframt bók sem ætti að lesa hægt og njóta og hugleiða. PS bókakápan er líka með þeim flottari og rímar mjög vel við efni hennar.
Mér fannst gott að lesa þessa bók, um það að lifa af einn við ansi hreint hráar aðstæður. Í ömurleikanum og einmanaleikanum var ljóðræna sem fólst í áminningu um að ekkert er eilíft hvernig sem allt var tilkomið.
Yndislega falleg og skelfileg bók. Ég les bara fyrir svefninn og ég fór mun seinna að sofa þau kvöld sem þessi bók beið mín á náttborðinu. Hún hafði áhrif á líðan mína allan daginn á milli þess sem ég las. Mun lesa þessa aftur, og mögulega aftur eftir það.