Pétur Kristinn er nýfluttur í gamalt hús við Kirkjulund þar sem stuttu áður áttu sér stað hræðilegir atburðir. Hann er samt sannfærður um að þar sé ekkert illt á sveimi … þar til hann rekur augun í dularfullar verur sem eru að baksa í garðinum hans, garðinum sem liggur upp að kirkjugarðinum.
really good continuation on the previous books and we are so close to the truth on what the hell happened so many years ago and why there's so many horrible things taking place!
Bókin er spennandi og kemst næst Rústunum í byggingu, með átökum, risi og lausn, svo ég upplifði bókina sem heildstæða sögu í stað kafla í bók. Í sögunni er haldið áfram að byggja upp baksöguna, lesandi fær mikilvægar vísbendingar um hvað það sé sem á sér stað í Rökkuhæðahverfinu og verður áhugavert að sjá hvernig það mun þróast áfram.