„Dyrnar þröngu heitir borg á Silkieyju, hún er fáum kunn ...“ Þannig hefst þessi fjöruga og erótíska saga af ævintýrum íslenskrar móður og eiginkonu í fjarlægri og draumkenndri borg. Hún kynnist Ágústi, ungum og ofstopafullum elskhuga, fröken Sonju Lísu Hrís sem þráir að vera elskuð af jafningja sínum, hinum blíðlynda Óskari, myndarlegri móður hans og fleira fólki sem margt minnir á persónur í Lísu í Undralandi.
Kristín grew up in Hafnarfjörður. She studied Literature and Spanish at the University of Iceland, then pursued Spanish at the Universities of Barcelona and Copenhagen. She has published poetry, novels, short stories and plays. Her first publication was the poetry book Í húsinu okkar er þoka (There is Fog in Our House) in 1987, and her first novel, Svartir brúðarkjólar (Black Wedding Dresses) came out in 1992. Kristín has won many awards for her work, including the DV Cultural Prize for Literature for her 1998 novel Elskan mín ég dey (I Will Die, my Love). Kristín has worked with other artists, such as the photographer Nanna Bisp Büchert, with whom she produced the book Sérstakur dagur (Special Day), in which poetry and photographs work together. She has also collaborated with Haraldur Jónsson on the film The Secret Lives of Icelanders.
Grillaðasta bók sem ég hef lesið. Eftir því sem líður á söguna virðist í samanburði karakternafnið fröken Sonja Lísa Hrís vera með því eðlilegra í Dyrunum þröngu. Það er alveg kostulegt nafn! En það er eitthvað dásamlegt við þennan karakter, hún leyfir sér að þrá staðfast og hávært og skammast sín ekki fyrir það. Hugrakkur yearner. Finnst ég svona eiginlega ekki geta mælt með þessari bók þó að ég hafi skemmt mér konunglega við lestur — þessi saga er ekki allra. Fólk þarf bara að detta inn í hana sjálft.