Stríðsbjarmar er saga þjóðar í stríði en jafnframt rúmlega þúsund ára saga Úkraínu, allt frá víkingum og kósökkum til keisaravelda og Sovétríkja og loks sjálfstæðis en þó enn meiri átaka. Úkraínustríðið er einhver örlagaríkasti viðburður okkar tíma og hér eru sem flestar hliðar málsins fangaðar á aðgengilegan hátt. „Það er auðvelt að sleppa stríðum lausum en erfiðara að enda þau. Og í raun lýkur þeim aldrei, ekki á meðan síðustu eftirlifendurnir draga enn andann. Stríð breytir öllu, mótar allt. Það lifir enn í hjörtum fólks löngu eftir að sprengjurnar hætta að falla. Og erfist stundum til næstu kynslóða.“Um hvað snýst stríðið í Úkraínu? Og hvernig er fyrir fólk að lifa við stríð? Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson stundaði nám í Úkraínu og hélt aftur þangað nokkrum mánuðum eftir að stríðið hófst til að leita svara við þessum spurningum og fleirum. Hann ferðaðist um landið þvert og endilangt, frá Lviv til vestri til Kharkiv í austri, frá Odesa í suðri til Kyiv í norðri. Loks hélt hann til vígstöðvanna í Donbas rétt eftir að gagnsóknin hófst um haustið og var stundum hætt kominn en komst heilu og höldnu heim. En stríðið hélt áfram og Valur fór aftur til Úkraínu sumarið eftir þar sem stríðsbjarmarnir loguðu enn. Stríð var orðið eðlilegt ástand og þó svo óeðlilegt um leið, venjulegt líf hélt áfram við hlið hins óhugsandi. Mitt í öllum hörmungunum mátti sjá þjóð verða til. Stríðsbjarmar er saga þjóðar í stríði en jafnframt rúmlega þúsund ára saga Úkraínu, allt frá víkingum og kósökkum til keisaravelda og Sovétríkja og loks sjálfstæðis en þó enn meiri átaka. Úkraínustríðið er einhver örlagaríkasti viðburður okkar tíma og hér eru sem flestar hliðar málsins fangaðar á aðgengilegan hátt.
Valur Gunnarsson hefur starfað sem blaðamaður í rúm 20 ár og fjallað um bæði menningar- og stjórnmál. Hann lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt-háskóla í Berlín og Kúras-stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur áður sent frá sér sex bækur, þar á meðal Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu, skáldsöguna Örninn og fálkann sem fjallar um hvað hefði gerst ef nasistar hefðu hernumið Ísland, sem og tvær bækur um „hvað ef?“ spurningar í sögunni. Valur hefur starfað fyrir fjölmarga íslenska miðla, til dæmis Ríkisútvarpið, Fréttablaðið, Stundina og Reykjavik Grapevine sem hann ritstýrði, og erlenda miðla á borð við The Guardian, Associated Press og Berliner Zeitung.
Valur hefur dvalið í Úkraínu á friðar- og stríðstímum. Stríðsbjarmar er að mestu rituð þar í landi undir ómi loftvarnaflauta.
Valur Gunnarsson (b.1976) is a historian, author, and journalist. His childhood was divided between Iceland, Norway and Great Britain, and as a teenager he spent his summers in Saudi-Arabia in the aftermath of the First Gulf War. He was co-founder and first editor of the English language paper Reykjavik Grapevine in 2003, which is still going strong. As correspondent for Associated Press and The Guardian, he covered such events as the return of Bobby Fischer, the economic crisis and the Eyjafjallajökull eruption. His previous novels include King of the North (2007) and The Last Lover (2013), both of which received excellent reviews. He has been interested in World War II ever since his grandmother, who worked for the phone company, told him about the time she saw Winston Churchill speak outside the Parliament building in downtown Reykjavik.
Bók fyrir alla sem vilja fræðast um stríðið í Úkraínu og sögu landsins í gegnum tíðina. Valur leiðir okkur inn á átakasvæðin og lesandi fær stríð beint í æð. Kostuleg er lýsing á ferð í gömlum sendibíl með vistir til sveita nærri hörðustu átökunum. Vígamenn og venjulegir borgarar, samheldni og barátta gegn fjandmanni sem lengi hefur litið á Úkraínu sem sína eign. Inn í söguna blandast barátta höfundar við aukakíló og líf Úkraínumanna fjarri heimahögum. Ögn síðri lýsing en ferðin um átakasvæðin, en bókin er samt í heildina mjög áhugaverð. Greinilega skrifuð hratt og hefði mátt við betri prófarkalestri. Skyldulesning fyrir alla sem vilja setja sig inn í stríðsátökin og vita um hvað deilurnar snúast.
Ég hafði mjög gaman af þessari bók. Hún var fróðleg og gaf innsýn í landssvæði og sögu sem ég þekkti lítið til, en er forvitinn um. Bókin er skrifuð á aðgengilegan og skemmtilegan hátt, þar sem höfundurinn fléttar saman sögu Úkraínu, stríðinu og eigin upplifunum og reynslu.