Jump to ratings and reviews
Rate this book

Tímaþjófurinn

Rate this book
Alda er glæsileg nútímakona, tungumálakennari við Menntaskólann í Reykjavík. Hún er af góðum ættum og býr einhleyp við ágætan efnahag. Líf hennar virðist í traustum skorðum þar til ástir takast með henni og einum samkennara hennar.

Samband þeirra gerbreytir lífi hennar og verður að lokum sá tímaþjófur sem ekkert fær við ráðið.

189 pages, Paperback

First published January 1, 1986

Loading...
Loading...

About the author

Steinunn Sigurðardóttir

48 books55 followers
Steinunn Sigurðardóttir was born in Reykjavík in 1950. She finished her Matriculation Examination at the Reykjavík Higher Secondary Grammar School in 1968 and a BA in Psychology and Philosophy at the University College in Dublin in 1972.

She published her first book, the poetry collection Sífellur (Continuances), 19 years old and received immediate attention. In 1995 she received the Icelandic Literature Prize for the novel Hjartastaður (Heart Place). Her books have been translated into other languages and a French movie based on the novel Tímaþjófurinn (The Thief of Time) premiered in 1999.

Sigurðardóttir was a reporter at the Icelandic National Broadcasting Service (RUV) and a news correspondent with intervals from 1970-1982. She has also worked as a journalist and written programmes for radio and television.

Steinunn Sigurðardóttir has lived for long and short periods of time in various places in Europe, in the US and in Japan. She currently divides her time between France and Iceland. She has one grown-up daughter.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
73 (22%)
4 stars
106 (32%)
3 stars
98 (30%)
2 stars
38 (11%)
1 star
11 (3%)
Displaying 1 - 30 of 33 reviews
Profile Image for Birta B. Kjerúlf.
57 reviews4 followers
December 27, 2025
Þrjár stjörnur því ég get ekki sagt að ég hafi notið lestursins sérstaklega vel. Mér fannst bókin spennandi í byrjun, jafnvel allan fyrri helming, en svo fór ég að eiga erfitt með frásögnina og hélt ekki þræði. Hins vegar naut ég góðs af stuttri greiningu á bókinni sem kom í lok einstaksins sem ég fékk á bóksafninu. Mér fannst gott að fá hjálparhönd að loknum lestrinum við að greiða úr tilfinninga- og tímaflækjunni og fá tilfinningu fyrir nýmæli bókarinnar við fyrstu útgáfu. Ég les hana líklega aftur seinna á lífsleiðinni, þá verður eflaust eitthvað í henni sem nær mér betur, eins og að ná betri fótfestu í stíg sem maður hefur stikað áður.
Profile Image for Amna.
21 reviews
October 20, 2025
Október Gellur that read bókaklúbbsbók. Þvílík bók og what a concept. Eilíf ástarsorg. Auch.
Profile Image for Elísa Rún.
139 reviews7 followers
Read
March 10, 2026
Ég gleypti Tímaþjófinn í mig allann fyrsta helming bókarinnar, svo fór aðeins að hægja á athyglinni - fannst ástarsorgin ansi langdregin en yfirallt æði bók!
Profile Image for Viktor Logi.
160 reviews2 followers
October 28, 2025
Þessi bók var friggin' awesome!

Fyrstu 60ish blaðsíðurnar var ég varla að skilja hvað var í gangi og mér fannst bókin flaka allt of mikið á milli random hluta.

Síðan datt ég bara inn í bókina! Ég fór að ímynda mér að ég væri að lesa persónulega dagbók Öldu með öllum tilfinningunum sem hún heldur leyndum.
Það gerði bókina strax áhugaverðari.
Mér fannst geggjað að sjá hvernig Alda spinar scenario út úr engu og býst við að allir séu að fókusa á henni á hverri stundu.

Ég heyrði frá nokkrum að þau hötuðu Öldu því hún er creepy og sjálfselsk og honestly pínu kvennahatari og áttu erfitt með að fylgja henni þess vegna. Allt af því er satt en ég fann aldrei fyrir neinum hatri. Ég var svo heillaður af undarlega hugsunarhátt hennar og vorkenndi ég henni frekar en hataði hana. Ég leit nánast á bókina sem einskonar documentary af geðbilaðri manneskju. Ég get ekkert gert til að breyta henni svo ég sit bara áhugasamur um hvað hún segir næst!

Mér fannst bókin ótrúlega vel skrifuð, með randóm ensku slettum. Íslenskan ekkí alvíg orðrétt. Punktar. Settir á skringlegum stöðum. ALL CAPS út í eitt! Það fékk mig virkilega til að ímynda mér að þetta væru persónulegar, óediteraðar hugsanir sem ég átti ekki að vera að lesa. Mjög trúverðugt!

Eins mikið og ég dýrkaði bókina þá fannst mér ekki nógu mikil framvinda í henni. Alda breytist mjög lítið en í endanum tekur hún skrítna ákvörðun bara af því bara. Mér fannst ekki nógu mikil ástæða gefin fyrir endanum. Bókin endar bara. Ekki sérlega spennandi endir. En ferðalagið skipti mestu máli svo það truflaði mig ekki það mikið.

Allt í allt var þetta geggjuð bók! Mjög áhugaverð! Mæli með!

4,5☆
Profile Image for Hrafnkell Úlfur.
128 reviews7 followers
March 24, 2026
Ást, þrá og sorg séð utanfrá lítur alveg út eins og geðrof, en þvílíkt geðrof sem það er! Steinunni tekst hér af algjörri snilld að hleypa manni inn í hugarheim Öldu og upplifa það sem hún upplifir af þvílíkri tilfinningalegri nákvæmni. Mörgum af línum bókarinnar hefði alveg eins geta verið skipt út fyrir spegla og það hefði náð sömu áhrifum.

Vildi að ég hefði lesið hana svona sex árum fyrr, en, eins og Wittgenstein tók fram í formála Tractatusins, að þessi bók er líklega einungis skiljanleg þeim sem hafa hugsað sömu hugsanir og tjáðar eru í henni, að þá hefði ég líklega ekki kunnað að meta hana.

Skilst að það sé frönsk kvikmynd upp úr bókinni frá '98, en ég get ekki ímyndað mér að hún sé hæf. Held að þau einu sem gætu tekið það að sér að aðlaga hana væri Chantal Ackerman og einhverss konar --guð hjálpi okkur ef slík vera fæðist einn daginn--gellu Terrence Malick.
Profile Image for Arína Vala.
6 reviews1 follower
July 19, 2022
hef ekki hætt að hugsa um þessa bók síðan ég las hana í menntaskóla og lét loksins verða af því að lesa hana aftur. alveg hreint mögnuð og ennþá betri í annað skiptið
Profile Image for Kjartan.
42 reviews
August 26, 2018
Ég las hana í sumarhúsi án símasambands. Það segir samt ekkert slæmt um gæði bókarinnar, hún er stórgóð. Rithátturinn er á hátt, sem mér finnst séríslenskur, ljóslifandi. Mér datt ekki í hug samanburðurinn, en andi textans er eins og heiðríkja á vormorgni. Semsagt mjög ánægjuleg aflestrar. Og það bætir við upplifunina að hafa gengið í MR, þekkjandi manngerðirnar sem umkringja Öldu. Allt mjög korrekt.
Profile Image for Gudrun.
50 reviews3 followers
October 19, 2025
Virkilega sérstök og einstök bók - Steinunn er ein af mínum uppáhalds höfundum og ég er að vinna mig hægt og rólega gegnum höfundarverkið hennar en þessi bók er ólíkt öllu sem ég hef lesið. Stíllinn er algjörlega one of a kind, blanda af póesíu og prósa, talmáli og háfleygum lýsingum, íslensku og enskuslettum.

Aðalkarakterinn er í raun óþolandi, sem er fersk tilbreyting frá hefðbundnum “heróínum” en á sama tíma er hún gerð viðkunnanleg því tengir lesandinn við tilfinningalíf hennar á sterkan hátt - amk þau okkar sem hafa upplifað þunga ástarsorg. Ástin snýst síðan upp í obsessjón og söguhetjan verður brjóstumkennanleg þegar á líður.

Einstakt stílbragð stendur upp úr.
Profile Image for Þorsteinn Davíð.
11 reviews2 followers
April 27, 2020
Fantagóð saga um Öldu, sem mér fannst sniðug og skemmtileg persóna. Bókina hámaði ég í mig og tel ég hana hiklaust meðal minna eftirlætisbóka. Uppsetning Þjóðleikhússins á sögunni fannst mér bæta miklu við hana og hlakka ég til að lesa þessa læsilegu bók á ný.
Profile Image for amanda.
190 reviews20 followers
November 2, 2023
Ég hafði alveg gaman af Öldu og hennar lífi. Fallegar ástarjátningar og ljóðræn togstreita. Samt nær hún mér ekki beint sem eitthvað uppáhald.
Profile Image for Andrea Bragadóttir.
28 reviews3 followers
August 19, 2022
Veit eiginlega ekkert hvað skal segja um svona bók. Alveg ótrúleg bara, takk fyrir mig.
Profile Image for Tanja Elín Sigurgrímsdóttir.
135 reviews2 followers
December 31, 2025
Þessi var einstök og ótrúleg, erfið og auðveld. Mig langar strax að lesa hana aftur og held ég muni lesa hana nokkrum sinnum á lífsleiðinni.
Profile Image for Sara Hlín.
488 reviews
March 22, 2017
Þessa bók má lesa oft þó svo að aðalpersónan í þessari 1. persónu frásögn sé mjög óþolandi og mann langi að hrista hana vel og lengi.
Profile Image for Song.
21 reviews1 follower
June 18, 2024
"Some people are Marxists and some believe in God but I seem to have believed in love without knowing it and look what it did to me"
Profile Image for Ása.
97 reviews5 followers
March 4, 2018
Tímaþjófurinn fjallar um Öldu, sem er einhleyp, vel ættuð kona á fertugsaldri. Hún starfar sem tungumálakennari í Menntaskólanum í Reykjavík. Líf hennar er í föstum skorðum. Síðan kynnist hún Antoni samkennara sínum, og ástir takast með þeim. Samband þeirra gjörbreytir lífi hennar og hefur afdrifaríkar afleiðingar í för með sér.

Þessi bók er ekki fyrir alla, en mér fannst hún mjög góð. Hún náði athygli minni strax á fyrstu síðu og hélt henni alveg út. Hún er vel skrifuð, er einhvers konar blanda af ljóði og skáldsögu. Aðalpersónan fór samt í taugarnar á mér. Hún er sjálfhverf og hrokafull. Þrátt fyrir það hafði maður samúð með henni þegar allt fer niður á við í hennar lífi. Mér fannst ókostir hennar fremur vera styrkleiki. Mér fannst þeir gera hana raunsærri, því enginn er fullkominn.

Ég get því heilshugar mælt með þessari bók. Hins vegar tel ég að margir gætu gefist upp á lestrinum vegna galla aðalpersónunnar.
Profile Image for Ásdís Hafrún.
Author 4 books2 followers
February 6, 2019
Saga um ævilanga ástarsorg. Eða þráhyggju? Mér varð hugsaði til Daga höfnunar eftir Elena Ferrante en sú mun hafa komið út á frummálinu 2002. Tímaþjófurinn er eldri. Það sem þessar tvær sögur eiga sameiginlegt eru konur sem upplifa höfnun og ástarsorg. Önnur sekkur svo djúpt að jaðrar við sturlun, hin er kaldari, fágaðri. Sú ítalska tekur til við að lifa aftur, sínu eigin lífi sú íslenska heldur áfram, alveg fram í dauðann að láta gamlan ástmann stjórna lífi sínu og tilfinningum.
Aðalsögupersónan Alda vill vera köld og stjórna eigin lífi og tilfinningum. Hún er á öruggum stað í samfélaginu og á frátekinn stað í dauðanum. Samt eru ýmis tákn sem benda til þess að staður barnsins hafi ekki alltaf státað af mikilli hlýju. Eflaust mætti greina það betur með því að rýna almennilega í táknmál sögunnar en satt best að segja leiðist mér að lesa blaðsíðu eftir blaðsíðu af ástarsorgum og legg fegin frá mér bókina að lestri loknum. Tímaþjófurinn má þó eiga það að stíllinn hjá Steinunni, þessi blanda af prósa og ljóðum, gerir lesturinn þess virði að þrælast í gegnum sorgardrama ástarinnar og það fylgir því vottur af samviskubiti að sleppa taumunum á Öldu án þess að gera lífi hennar og sálarástand ekki betri skil.
Profile Image for Þorgerður María.
29 reviews3 followers
June 29, 2021
Las alla bókina á einum degi. Þetta er saga um konu með þráhyggju fyrir manni sem hún varð ástfangin af án þess að þekkja hann neitt sérstaklega vel. Saga um yfirborðskennda konu sem býr sér til sannfærandi hugarheim þar sem karlmaður verður að guði. Undirtónn um stéttaskiptingu og umskipti hvaða stéttir eru fínar stéttir. Í byrjun er hún fína fólkið en svo verður Anton ráðherra og byrjar þá sjálfur að vera fína fólkið sem hann var alls ekki í byrjun bókarinnar. Skemmtileg lesning en dáldið háfleygur stíll fyrir minn smekk. Hugsa að ég þyrfti að lesa hana aftur núna þegar ég er búin að læra á stílinn. Fann til með þessari konu en hélt engan vegin með henni.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Einar Jóhann.
323 reviews13 followers
January 14, 2019
Bókin er launfyndin og kaldhæðin og aðalpersónan er kostuleg, það hefði verið fróðlegt að sitja hjá henni eina kennslustund eða tvær. Sögusviðið er kunnuglegt þó ég vilji nú ekki kannast við að þetta sé MR snobb í hefðbundnum skilningi, hér er milu frekar verið að gera grín að þessari menningu.
Fyrsti þriðjungur bókarinnar er sterkastur þeirra. Bókin á fjórar stjörnur alveg skilið. Það er ekki langt síðan ég las síðast bók eftur Steinunni og þessi lætur mig vilja halda því áfram.
Profile Image for Fanney Magna.
11 reviews4 followers
September 30, 2024
Ekki fyrir mig. Gat ekki klárað hana. Ritstíllinn var yfirgengilega ljóðrænn sem varð afskaplega þreytandi eftir aðeins nokkra kafla. Það er eitthvað svo tilgerðarlegt við þessa bók að mínu mati. En ég hef aldrei lesið íslenska "ástarsögu" sem mér hefur líkað við og því möguleiki að þetta sé einfaldlega bókaflokkur sem ég persónulega ætti að forðast.
Profile Image for Ingunn Aurora.
3 reviews
November 9, 2025
Ég las þessa í mjög miklu flýti fyrir skólann en hún er alveg ágæt en mundi ekki lesa þessa aftur.

Hún var fallega skrifuð og nokkuð ljóðræn sem mér líkaði við en ég var orðin smá þreytt á endalausri ástarsorg og þráhyggju fyrir því gamla.. en það er kannski bara smekksatriði frekar en því þetta er léleg saga
This entire review has been hidden because of spoilers.
Profile Image for Berglind.
Author 2 books10 followers
September 30, 2018
Textinn er listilega vel skrifaður og fallega ljóðrænn. En söguþráðurinn sjálfur er langdreginn á köflum og erfitt að hafa samkennd með aðalpersónunni sem er því miður.
Profile Image for Meg.
193 reviews
May 4, 2021
Devastatingly "triste", perhaps the Icelandic poetry did not translate well for me; I just couldn't get a hold on Alda.
Profile Image for Kristin Sesselja.
143 reviews
April 11, 2024
Mjög áhugavert format og margar mjöööög flottar línur. Ég bara tengdi svo lítið. Sorlegt hvað hún lifði innantómu lífi í ástarsorg og dagdraumum. Endirinn mjög flottur en sorglegur :(
Displaying 1 - 30 of 33 reviews