Jump to ratings and reviews
Rate this book

Meydómur

Rate this book
– sannsaga –

Fullorðin dóttir kynnir sig hér fyrir látnum föður sínum í listilega skrifuðu bréfi sem jafnframt er bréf til ungu meyjarinnar sem hún eitt sinn var. Meydómur er saga af leiðinni sem hún fetar frá sakleysi bernskunnar til uppreisnar unglingsáranna þegar meydómi hennar lýkur. Saga sem rífur í hjartarætur lesandans.

184 pages, Paperback

First published November 11, 2021

5 people are currently reading
71 people want to read

About the author

Hlín Agnarsdóttir

7 books4 followers
Hlín Agnarsdóttir has studied Drama at the Universities of Uppsala and Stockholm, and directing in London.
She has written three books, the novels Hátt uppi við Norðurbrún (High up by North Edge) and Blómin frá Maó (The Flowers from Mao), as well as her autobiography Að láta lífið rætast (Letting Life Work Itself Out). She has also written stage plays, which have been performed in the National Theatre of Iceland, and scripts for television and radio. She has directed in all the foremost theatres in Iceland, as well as translating plays by Lars Norén.

Ratings & Reviews

What do you think?
Rate this book

Friends & Following

Create a free account to discover what your friends think of this book!

Community Reviews

5 stars
42 (25%)
4 stars
78 (46%)
3 stars
36 (21%)
2 stars
9 (5%)
1 star
3 (1%)
Displaying 1 - 18 of 18 reviews
Profile Image for Berglind Steinsdóttir.
68 reviews2 followers
Read
May 29, 2022
Algjörlega mögnuð saga. Litla sjálfið ávarpar pabba sinn í 2. persónu og talar um sjálft sig í 3. persónu fram eftir bók en breytir svo í 1. persónu við merkingarbær tímamót. Ég er fegin að ég ákvað að lesa hana eftir þau miklu vonbrigði sem mér þótti Hilduleikur vera.
Profile Image for Sigurbjörg.
2 reviews1 follower
February 28, 2022
Sérlega vel skrifuð og eftirminnileg bók. Lýsir vel tíðarandanum, kallar fram minningar frá þessum tíma og hvernig það var að vera barn og unglingur.
Profile Image for Sara Hlín.
474 reviews
March 22, 2022
Bréf dóttur til látins föður þar sem hún fer yfir líf sitt og samskipti við föðurinn. Feðginin hafa átt í stormasömu sambandi og dóttirin ósátt við uppeldið á margan hátt. Falleg saga og vel skrifuð sem gefur innsýn inn í íslenskan hversdagsleika fyrir nokkrum áratugum þegar staða konunnar og ungra stúlkna var allt önnur en í dag.
Profile Image for Inga Þórisdóttir.
13 reviews
November 10, 2022
Mjög vel skrifuð og eftirminnileg bók . Margt svo vel gert og sjónarhornið á barnið og upplifanir þess svo skýrt, þrátt fyrir allan sársaukann. Mjög áhugavert líka að lesa um úrvinnslu höfundar á tilfinningum sínum.
Profile Image for Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.
132 reviews11 followers
May 31, 2022
Ég hef aldrei verið mikið fyrir ævisögur en kannski eru -sannsögur- bara eitthvað fyrir mig. Vel skrifuð, bæði sem æviminningar og sem spegill á samfélagið fyrir ekkert svakalega löngu.
Profile Image for Elín Gunnlaugsdóttir.
106 reviews4 followers
July 12, 2022
Þessi bók er einkar læsileg. Hún lýsir horfnum heimi sem var á margan hátt grimmari en hann er nú. Í það minnsta hér á landi. Núna fá flest börn að vera börn.
Profile Image for Rebekka Stefánsdóttir.
Author 10 books44 followers
July 25, 2022
Hlustaði á frábæran lestur Hlínar á Storytel. Átakanleg, grípandi og fallega skrifuð.
Profile Image for Svava Ólafsdóttir.
80 reviews2 followers
April 25, 2023
Mögnuð og á köflum sár saga kraftmiklar konu með mikla útgeislun. Takk🙏
This entire review has been hidden because of spoilers.
Displaying 1 - 18 of 18 reviews

Can't find what you're looking for?

Get help and learn more about the design.