Bragi Valdimar Skúlason er landsmönnum að góðu kunnur sem Baggalútur og umsjónarmaður skemmtiþátta í sjónvarpi. Hann hefur undanfarin ár verið einn vinsælasti laga- og textahöfundur þjóðarinnar og margir þeirra orðið fólki hugstæðir.
Í þessari bók má finna mörg af þekktustu kvæðum Braga Valdimars – og mörg óþekkt – og kveðskapurinn fjölbreyttur. Hér eru gamankvæði, ástarkvæði, ferðavísur, lífsspeki, kvæði um styttur og firði, menn og mön ... Og alltaf yrkir Bragi af fádæma hagleik, fyndni og orðkynngi sem fáum öðrum er gefin.
Líklegast einn besti textahöfundur Íslands svo það er gaman að sjá hann við ljóðagerð og gaman að sjá textana hans við lög sem allir þekkja í öðru samhengi.
Ekki löng bók en góð, mörg ljóðanna fyndin eins og við var að búast en ekki tilgerðaleg. Ljóðið til Vigdísar auk allra stuttu ljóðanna um staði og fólk standa upp úr. En þó erfitt að gera upp á milli, lítið um eitthvað sem gætu kallast veikir punktar.
Fín ljóðabók, sum ljóðin síðri en önnur eins og gengur. Þau bestu tær snilld sem eiga eftir að lifa með þjóðinni. Gördjöss, Mamma þarf að djamma og Það snjóar. Braga Valdimar er fátt óviðkomandi, hann hefur víða drepið niður fæti og ort um hin ýmsustu krummaskuð. "Villtist yfir hundblautt haf Hrafna-Flóki. Næðingsskeri norsku gaf nafn í djóki." Full af góðum húmor og hressleika.
Bragi er einstaklega orðheppinn maður. Víðlesinn og með ofgnótt af orðaforða. Glúrinn og hnyttinn. Margir fallegir textar sem sungnir hafa verið. Ánægjulegt.
This entire review has been hidden because of spoilers.