Þegar Ásdís Halla Bragadóttir fór að forvitnast um fjölskyldu blóðföður síns sem hún kynntist á fullorðinsárum var fátt um svör þegar hún spurðist fyrir um einn mann: Dr. Moritz Halldórsson. Af hverju stafaði þessi þögn um íslenskan lækni sem starfaði í Kaupmannahöfn og Vesturheimi? Forvitni hennar var vakin.
Eftir heimildaleit í fjórum löndum tókst Ásdísi Höllu að svipta hulunni af ævintýralegu lífshlaupi manns sem átti sér stóra drauma og fjölskylduleyndarmálum sem aldrei áttu að verða afhjúpuð. Inn í söguna fléttast mestu fjöldamorð í sögu Danmerkur, sjálfstæðisbarátta Íslendinga, Vesturferðir, helstu ráðamenn þjóðarinnar – og Kristján níundi Danakonungur.
Bókin verður fljótlega spennandi og þegar líður á fannst mér erfitt að leggja hana frá mér. Mjög vel skrifuð og síðasti hluti hennar, sem gerist í Ameríku, er mjög áhrifamikill.
Fín bók og spennandi á köflum, þetta er ótúleg saga læknisins Moritz og það hvernig óheppnin eltir hann og fordómarnisr sem hann verður fyrir sem eru auðvitað í takt við tíðarandann. Mér finnst höfundinum takast órúlega vel að flétta saman sögu hans og fjölskyldu, með heimildum og hæfilegum skáldskap til að tengja þetta allt saman. Endilega lesið þessa bók.
Læknirinn í Engla verksmiðjunni er vandað og áhrifamikið sögulegt skáldverk sem segir frá ævi Moritz Halldórssonar, læknis á umbrotatímum. Ásdís Halla Bragadóttir rekur sögu hans af næmni og mikilli heimildavinnu, og fléttar saman persónulega reynslu, samfélagsbreytingar og læknisfræðilega þróun á aldaskiptunum á þann hátt að lesandinn dregst að bæði sögusviðinu og persónunni sjálfri. Bókin er fallega skrifuð, með ríkum stíl og myndrænni frásögn sem gefur manni tilfinningu fyrir tíðarandanum. Hún sameinar dramatík, mannbætandi innsýn og sögulega dýpt þannig að sagan birtist bæði sem mannleg og stór. Þetta er verk sem höfðar jafn vel til þeirra sem elska sögulegar skáldsögur og þeirra sem hafa áhuga á íslenskri menningarsögu og lífshlaupi raunverulegra einstaklinga.❤️ Fràbær og einstaklega vel skrifuð bók, þar sem höfundurinn hefur sett mikla vinnu í heimildir. 😊
Þessi bók er að mörgu leyti áhugaverð og góð lesning. Frásögnin byggir á mikilli heimildavinnu höfundar eins og kemur glöggt fram í ítarlegri heimildaskrá. Við fáum góða innsýn í líf læknisins í Kaupmannahöfn á síðari hluta nítjándu aldar, bæði sem námsmanns og læknis. Hér koma líka upp aðstæður sem kallast á við siðfræðilegar spurningar, ekki í fyrsta sinn vissulega sem læknar hafa þurft að standa frammi fyrir spurningum sem varða lögmæti fóstureyðinga og þau mörk sem lögin setja. Eins gefur bókin innsýn í hvað almannarómur og fjölmiðlarumfjöllun getur verið óvægin og oft á tíðum beinlínis röng.
Mér fannst textinn lipur og fljóta vel. Áherslan er lögð á lífshlaup læknisins eins og það birtist í heimildunum og engin tilraun gerð til að fella dóma eða fegra hlutina.
Þessi bók - sú fyrsta sem ég les eftir Ásdísi Höllu - er vel skrifuð blanda af sagnfræði, sönnu sakamáli og skáldsögu. Frásögnin er öll í fyrstu persónu og ég held að mér sé óhætt að segja að sagnaþulurinn hér sé einn sá óáreiðanlegasti sem ég hef haft kynni af. Bókin er skrifuð sem nokkurs konar lofsöngur til fóstureyðinga, og sögumaðurinn málar sig upp sem mikið fórnarlamb. Hann bara "lendir í" að þurfa að drepa börn í móðurkviði sem komin eru að því að fæðast, og hann afsakar stöðugt glæpinn sem hann framdi og hlaut dóm fyrir. Ekkert er sko mikilvægara í læknisstarfinu en að losa ungar stúlkur (og gamlar pútur) við "óvelkominn burð"; fóstureyðing er honum nánast heilög skylda og konur eru alltaf saklaus fórnarlömb þegar getnaður á sér stað; og sköpun lífs er eitthvað sem skúrkar gera konum - nema þau séu í hjónabandi. Nei þetta eru ekki ýkjur, í seinni hluta bókarinnar er réttlætingin á fóstureyðingum komin á þetta stig.
This entire review has been hidden because of spoilers.
Áhugaverð bók sem er greinilega unnin eftir töluverða heimildavinnu höfundar. Textinn rennur þægilega og greinist saman á skemmtilegan máta.
Mer fannst áhugavert að lesa söguna nú svona stuttu eftir að lögmæti fóstureyðinga hafa verið í brennidepli í Bandaríkjunum - sjá hvað í raun hvað lítið hefur breyst og hversu auðvelt er að taka sjálfsögð mannréttindi af með einu pennastriki.
Þessi bók er um mann sem er hegnt fyrir pólitískar skoðanir sínar og baráttu fyrir sjálfstæði Íslendinga. Ásdís Halla er virkilega góður penni, mjög gaman að lesa bækurnar hennar. Jafnvel tilvitnanirnar eru áhugaverðar hjá henni.
Vel skrifuð og spennandi frásögn af líf Moritz læknis. Þó er erfitt að átta sig á hvort að skyldleiki höfundar við viðfangsefnið skyggi á gagnrýni á störf hans og lifnaðarhætti.
Vel skrifuð bók og áhugaverð. Lífshlaup Moritz læknis var enginn dans á rósum. Glæpamálin sem hann flæktist í á síðari hluta nítjándu aldar eru all svakaleg og fróðlegt að lesa um það sem á eftir gekk. Til að spilla ekki sögunni fyrir öðrum þá ætla ég ekki að segja meira. Ég mæli með lestri þessa bókar, það er ekkert um hökkt heldur rennur maður ljúflega áfram á hverri blaðsíðunni á eftir annarri.