Ég bjóst ekki við að fíla þessa bók svona mikið, ég datt svo rosa inn í hana samt frekar fljótt. Ég féll alveg fyrir sálfræðinga brellunni í rauninni. Ég hugsaði samt strax miðað við hans viðbrögð að hann vissi meira um málið og svo var hann auðvitað sálfræðingur þeirra líka. Það er samt ekki oft þar sem ég leyfi mér að hugsa heyrðu það er kannski eitthvað yfirnáttúrulegt í gangi en svo kom reyndar hugsunin að það hlyti samt að vera manneskja á bakvið þetta (sagði ehv scooby-doo?). Ég bjóst bara engan vegin við nágrannanum, það var samt á einum tímapunkti þar sem ég hélt að hún væri samt kannski in on it en ekkert meira en það. En vá ég fékk bara svo mikla ónotatilfinningu og þessi bók náði mér alveg.