"Íslenska landsliðið vakti heimsathygli með frammistöðu sinni á EM í Frakklandi árið 2016. Og ekki minnkaði undrunin þegar liðið endaði á toppnum í ógnarsterkum riðli í forkeppni HM í Rússlandi. Hvernig var þetta hægt? Með leikmenn sem flestir voru í lítt þekktum liðum og þjálfarinn tannlæknir í hlutastarfi!
Í þessari áhugaverðu og skemmtilegu bók gefst einstakt tækifæri til að skyggnast baksviðs hjá íslenska landsliðinu, og kynnast „strákunum okkar“ í sigrum og ósigrum, gleði þeirra og sorgum, hjátrú og hefðum, fá innsýn í líf atvinnumannsins – og aðferðir þjálfaranna Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar. Auk þess er hér að finna ljósmyndir að tjaldabaki sem hvergi hafa birst áður.
Þorgrímur Þráinsson á að baki langan knattspyrnuferil en hefur líka verið starfsmaður landsliðsins í meira en áratug. Hann gjörþekkir strákana í liðinu, á trúnað þeirra og segir söguna á bak við ævintýrið af innsæi, húmor og leiftrandi sagnagleði."
Þorgrímur Þráinsson er fæddur í Reykjavík 8. janúar 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1980 og stundaði nám í frönsku við Sorbonne háskóla í París 1983-1984. Hann var blaðamaður hjá Fróða frá 1985 og ritstjóri Íþróttablaðsins og ritstjórnarfulltrúi barnablaðsins ABC frá 1989. Í lok árs 1996 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar. Þorgrímur lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1979 til 1990 og gegndi fyrirliðastöðunni síðustu fimm tímabilin. Áður lék hann með Víkingi frá Ólafsvík. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari á knattspyrnuferlinum með Val og tvisvar sinnum bikarmeistari. Þorgrímur lék alls um 180 leiki í efstu deild og 17 landsleiki fyrir Íslands hönd. Þá varð hann bikarmeistari í frjálsíþróttum með FH árið 1988 en hann keppti í spjótkasti.
Þorgrímur hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og var fyrsta bók hans, Með fiðring í tánum (1989), metsölubók á sínum tíma. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1997 fyrir bókina Margt býr í myrkrinu og aftur árið 2010 fyrir bókina Ertu Guð, afi?. Fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna, Allt hold er hey, kom út 2004.
Virkar svolítið eins og bloggfærslur frá Þorgrími. Sumar sögurnar áhugaverðar aðrar leiðinlegar og sumar útúr kú. Heilt yfir allt í lagi í ljósi aðstæðna en ég hefði aldrei lesið hana ef ekki værir fyrir HM.