Ef maður hrindir af stað of stórum byltingum sviðnar jörð og rýkur úr rústum. Það verður mannfall og sér stórlega og jafnvel varanlega á umhverfinu. Mannsaldrar geta farið í að jafna sig eftir stórar byltingar og sjálfur skaðast maður oftast mest, tortímir jafnvel sjálfum sér. En ef maður gerir litlar byltingar, alla daga, ef maður gerir byltingar sem fæstir taka eftir, þá hreyfist veröldin með manni þangað sem förinni er heitið. Kennslukonan Glóa flýr kaldan klakann og sest að í lukkulandinu Danmörku. En þegar ellin færist yfir leitar hugurinn heim – til formæðra og áhrifavalda. Litlar byltingar eru sögur af tíu konum sem spanna í senn eitt kvöld, eitt ár og heila öld. Hér óma raddir mæðgna, systra og dætra sem dreymir um betri daga, sléttar götur, frjálsar konur og börn sem lifa.
Kristín Helga studied at the University of Barcelona, and later obtained a BA in Spanish and Media Studies from the University of Utah. She has worked as a travel and tour guide, been an air stewardess and a reporter on Icelandic news programmes. Since 1998 she has concentrated on writing and journalism. Her first book, Elsku besta Binna mín (I Love you, Binna my Dearest), came out in 1997 and since then Kristín Helga has become one of Iceland's best loved children's authors.
Mér fannst þetta vera svona hugljúf umfjöllun um lífshættu margra skyldra kynslóða. Hafandi sjálfur búið í Kaupmannahöfn í nokkur ár sem námsmaður var margt þar sem ég kannaðist við. Framsetningin á hinum ýmsu kynslóðum var svolítið ruglingsleg þegar farið var fram og til baka í tíma. Bókin ristir kannski ekki djúpt í bókmenntalegum skilningi en var samt bara ljúf lesning. Freistast til að gefa henni 4 stjörnur, væri kannski í 3,5 ef það væri hægt.
Ég hafði gaman af að lesa svona um margar kynslóðir kvenna, líf þeirra, afdrif og afkomendur. Fær mann til að hugsa um sínar formæður, konurnar sem komu á undan. Skemmtilega uppsett saga, vel skrifuð og þægileg lesningar. Einnig gaman að sjá hvernig þær tengdust allar konurnar. Bókin Litlar byltingar er ef til vill lítil bylting sjálf enda snýst hún nær alfarið um konur, karlpersónur eru allar frekar smávægilegar og stundum varla að á þær sé minnst. Alvöru konur í íslenskum raunveruleika. Mæli með henni.
Frábær saga tíu kvenna sem tóku lífið í eigin hendur og voru hetjur í eigin lífi. Ljóðrænn texti sem flýtur áfram og tekur mann í ferðalag um tíma og rúm. Mæli með fyrir alla!