Leynilegur ástmaður minn stendur í eldheitu sambandi við barbídúkku ... Hólmfríður handavinnubani lætur eins og ég sé með fjórtán þumalputta ... auk þess hóta kaloríudraugarnir að breyta mér í súmóglímukappa með tveggja sæta rass. Saga hinnar fjórtán ára Möggu Stínu. Peð á plánetunni Jörð sló rækilega í gegn þegar hún kom fyrst út og rifjaði upp fyrir lesendum meistaraleg tök Olgu Guðrúnar á bókmenntum fyrir unglinga.